152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:21]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. formanni fjárlaganefndar fyrir yfirferð um nefndarálit. Mig langar til að spyrja, af því að nú erum við að ræða mál í dag í þeirri röð að fjárlögin eru fremst í röðinni: Komi upp sú staða í dag, hv. formaðurinn fór yfir að það hefðu verið gerðar sérstakrar breytingar á tekjuhliðinni vegna ákvarðana sem voru teknar í tengslum við átakið Allir vinna, verði eitthvað gert í þingsal í dag sem kallar á breytingar, hvernig verður það gert? Verður það gert með framhaldsnefndaráliti fjárlaganefndar eða breytingartillögu sem verður tekin inn með afbrigðum ef ákvörðun verður tekin í þingsal í dag sem kallar á breytingartillögu eða einhverja aðlögun fjárlaga? Spurningin er sem sagt: Hvernig sér hv. formaður fjárlaganefndar fyrir sér að það verði gert, komi sú staða upp?