152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:23]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Tvær veigamiklar breytingar eiga sér stað á milli 2. og 3. umr. fjárlaga. Önnur felur í sér verulegt tekjutap, hin umfangsmikla tilfærslu á fjármunum. Sú fyrri snýr að framlengingu á úrræðinu Allir vinna, og mun ég koma að þeirri tillögu síðar í ræðu minni, en hin breytingartillagan snýr að skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta. Minnisblað um umfang og áhrif þeirra breytinga barst nefndarmönnum í fjárlaganefnd 26. desember sl., annan í jólum, kl. 16:30. Lítið kemur fram í minnisblaðinu nema þær upphæðir sem flytjast á milli málefnasviða og tafla sem tilgreinir hvert fjármagnið á að renna, en engin greinargerð fylgir um hvers vegna ákveðnir málaflokkar eru fluttir á milli ráðuneyta. Aðeins er vitnað í forsetaúrskurð um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, en hvergi má finna útskýringu á því hvernig komist var að niðurstöðu um hvaða málaflokkar skyldu fluttir á milli. Þá er engin greiningarvinna á bak við þessa ákvörðun, hvaða ábati hlýst af henni eða rökstuðningur. Fyrstu breytingarnar tengdar Stjórnarráðinu, sem koma hér fram, hljóða upp á 15 milljarða kr., ef litið er á það ráðuneyti þar sem mesta breytingin er varðandi fjárveitingu, en auðvitað er aðeins um hreinar millifærslur að ræða. Það breytir ekki því að frá félagsmálaráðuneyti fara í núverandi holli 11,5 milljarður og til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis 15 milljarðar.

Það gefur augaleið að enginn tími var fyrir nefndarmenn til að rýna þessar breytingar að ráði eftir að tillögurnar birtust sem og minnisblöð frá ráðuneytinu. Þetta vinnulag er ekki nýlunda í fjárlaganefndarumræðunni eða vinnunni þetta árið en hraðinn í aðdraganda 3. umr. þar sem stórum breytingum er ýtt í gegn sem auka lántökuþörf ríkissjóðs og gjörbreyta skiptingu fjárheimilda rammar verklagið inn að einhverju leyti.

Virðulegi forseti. Fjárlaganefndarvinna milli 2. og 3. umr., sem fór fram á örfáum klukkustundum, ef svo má segja, leiddi til þess að fyrir Alþingi liggur nú til samþykktar fjárlagafrumvarp fyrir árið 2022 sem skilar ríkissjóði 7 milljörðum kr. verri afkomu en eftir 2. umr. Það er ekki vegna þess að meiri hlutinn hafi ákveðið að fylgja skynsamlegum og fjármögnuðum tillögum við 2. umr. sem sneru að: Í fyrsta lagi að stoppa í 2 milljarða kr. gat í rekstri sjúkrahúsanna. Í öðru lagi að stöðva kjaragliðnun milli viðkvæmra hópa í samfélaginu sem fá tekjur sínar í gegnum almannatryggingakerfi og almennra launþega. Í þriðja lagi að styðja við aukna virkni meðal öryrkja sem geta ekki unnið án þess að lenda í hæstu skattlagningu hér á landi. Og í fjórða lagi ákvörðun um að tryggja fulla fjármögnun starfsemi SÁÁ þar sem um 600 manns eru nú á biðlista, mikið til ungt fólk með ung börn sem þarf mikla aðstoð.

Það er heldur ekki vegna þess að meiri hlutinn og ríkisstjórnin hafi ákveðið að taka undir tillögur minni hlutans um að fjármagna almennilega og fylgja eftir aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum, sem Loftslagsráð telur ómarkvissa og það þrátt fyrir að metnaðarfullt markmið í stjórnarsáttmála hafi verið uppfært um að ná 55% samdrætti í losun eftir átta ár. Ekki kemur þessi 7 milljarða kr. aukakostnaðar heldur til vegna þess að ákveðið hafi verið að taka undir tillögur minni hlutans um að leggja meira fjármagn í framlög til uppbyggingar hagkvæms húsnæðis, sem gæti dregið úr verðtryggingu á húsnæðismarkaði, dregið úr launaþrýstingi og verðbólgu og þar með kostnaði heimila, ríkissjóðs, fyrirtækja, sem er mjög áhugavert í ljósi þess að aukin verðbólga, sem má að nær öllu leyti rekja til íbúðaverðshækkana, hefur kostað ríkissjóð 13 milljarða kr. á árinu. Öllum þessum tillögum var nefnilega hafnað af meiri hlutanum núna fyrir jól. Hér er um að ræða 7 milljarða kr. kostnað í tengslum við verkefni sem fjármálaráðuneytið, ráðuneyti ráðherra stjórnmálaflokks sem í orðræðu leggur mikla áherslu á ábyrgð í ríkisfjármálum, mikilvægi forgangsröðunar og að halda aftur af kostnaði og hefur að sama skapi talaði um að ríkið geti sig lítið hreyft við núverandi kringumstæður til þess að mæta stóru áskorunum okkar tíma vegna þess að verðbólga sé til staðar. Þetta sama ráðuneyti telur engar efnahagslegar forsendur vera fyrir umræddu verkefni, nánar tiltekið í verkefnið Allir vinna.

Í minnisblaði fjármálaráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar 16. desember sl. segir, með leyfi forseta:

„Það er niðurstaða SSK út frá stöðu efnahagsmála, stöðu þeirra atvinnugreina er tengjast byggingariðnaði, bílaviðgerðum o.fl. og upphaflegu markmiði tímabundinnar endurgreiðslu á 100% VSK, um að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru, að ekki sé til staðar þörf á framlengingu úrræðanna.“

Þegar litið er til hagspár um fjárfestingu í atvinnulífinu á næsta ári kemur einnig fram í minnisblaðinu, með leyfi forseta:

„Í þessum spám er ekki gert ráð fyrir framhaldi á 100% endurgreiðslu VSK af vinnulið. Þessar spár benda ekki til að þörf sé fyrir sérstakan skattahvata í byggingarstarfsemi. Varðandi endurbætur og viðhald íbúðarhúsnæðis þá bendir fátt til verkefnaskorts. […] Þá má nefna að letjandi áhrif Covid á ferðalög til útlanda hafa að sama skapi haft hvetjandi áhrif á sumarbústaðaframkvæmdir og þau áhrif eru ekki horfin. Auk þess bendir margt til þess að umframeftirspurn sé eftir iðnaðarmönnum og myndi áframhaldandi skattahvati fremur viðhalda því ójafnvægi en draga úr því.“

Hvað varðar stöðu ríkissjóðs er fjármálaráðuneytið líka skýrt, með leyfi forseta:

„Framlenging myndi torvelda það verkefni að draga úr hallarekstri ríkissjóðs. Bæði yrði um öruggt og verulegt beint tekjutap að ræða og auk þess líkur á að jafnræði yrði raskað sem myndi skapa þrýsting um hliðstæðar endurgreiðslur til handa fleiri tegundum starfsemi.“

Þá virðast engar greiningar vera til staðar á hvort og hvernig þessu úrræði hefur tekist að sporna gegn svartri atvinnustarfsemi. Raunar hefur ákveðin útfærsla á þessu úrræði verði til staðar í að verða tíu ár, en það liggja samt engar tillögur fyrir eða greiningar fyrir í ráðuneytinu hvernig Allir vinna hefur í gegnum árin haft áhrif á svarta atvinnustarfsemi eða er þar neitt sem bendir til þess að hækka hlutfallið upp í 100% árið 2020 hafi miklu breytt í þessu samhengi. Við vitum það einfaldlega ekki. Það er ekki hægt að fullyrða neitt í þessu samhengi, greiningarnar liggja ekki fyrir.

Ráðuneytið velti því einnig upp hvort þetta sé besta nýting fjármuna í minnisblaðinu, með leyfi forseta:

„Þar sem ívilnanir af þessari tegund eru í eðli sínu styrkir, er enn fremur þörf á að leggja sérstaklega mat á hvort þessum fjármunum væri mögulega betur varið með öðrum hætti eða á öðum vettvangi.“

Að lokum er í minnisblaði til fjárlaganefndar 22. desember 2021 talað um áhrif þessarar ákvörðunar á mögulegan niðurskurð síðar meir í ríkisfjármálum, með leyfi forseta:

„Lakari afkomu- og skuldastaða mun hafa í för með sér að meiri þörf en ella kann að verða fyrir aðhaldsráðstafanir á komandi árum.“

Engin röksemdafærsla hefur borist frá meiri hlutanum í fjárlaganefnd um hvers vegna mjög afgerandi álit fjármálaráðuneytisins á framlengingu verkefnisins Allir vinna er hunsað. Á álitið er ekki einu sinni minnst í nefndaráliti meiri hlutans.

Virðulegi forseti. Það þykir eftirsóknarvert að reikna hlutina út, fá efnahagslegt samhengi, taka ákvarðanir á yfirvegaðan og kaldan hátt út frá staðreyndum, teknókratismi er þetta stundum kallað innan hins pólitíska sviðs. Það sem er áhugavert í þessu samhengi er hvenær teknókratísk rök eru notuð á þessu sviði og hvenær ekki. Samfélagsleg umræða er reyndar að mínu mati orðin gegnsýrð af arðsemis- og hagvaxtarútreikningum; allt gengur út á að reikna sig niður á rétta tölu til að réttlæta aðgerðir. Eftirtektarverðasta dæmið frá síðasta kjörtímabili var farsældarfrumvarp ríkisstjórnarinnar þar sem búið var að reikna út að fjárfesting í börnunum — takið eftir orðanotkuninni: fjárfesting — væri jafn arðbær og fjárfesting í Kárahnjúkavirkjun, aðeins arðbærari en Sundabraut en ekki alveg jafn arðbær og Keflavíkurflugvöllur. Á þeim forsendum var ákveðið að ráðast í fjármögnun á tengiliðum fyrir börn innan stofnana á vegum hins opinbera. Það er ekki nóg í dag að gera eitthvað af því að það er það rétta í stöðunni. Því fylgja víst of miklar tilfinningar þrátt fyrir að fólk sem hefur talað á svokölluðum tilfinningalegum forsendum í áratugi sé ekki bara að tala með tilfinningum sínum, það vissi og veit enn að efnahagur okkar er byggður á fólki og að samfélag sem styður við fólk, ungt fólk, börn, stendur betur að vígi en önnur samfélög. Það ætti ekki að þurfa hagfræðing til að reikna það út. Það ætti ekki að þurfa tilbúnar forsendur og formúlu til að bera saman fólk, börn og vega- og virkjunargerð, en þannig virðist hins vegar vera oftar en ekki í dag; markaðslegar forsendur virðast þurfa að eiga við allt í samfélaginu. Þetta er umhugsunarverð þróun, jafnvel fyrir manneskju eins og mig með hagfræðibakgrunn, því að staðreyndin er sú að það eru nær engar rannsóknir sem sýna fram á nákvæmlega hvað styður við hagvöxtinn sem títt er rætt um að sé aðalmarkmið ákvarðana. Fjölmargar rannsóknir benda hins vegar til þess að vel unnin stefna í ákveðnum málaflokkum sem styður við fólk og bætir lífsskilyrði þess sé skynsamleg.

Þegar öllu er á botninn hvolft er það markmið stjórnvalda að bæta lífsskilyrði fólks. Af því leiðir að samfélagið styrkist, sem styður við efnahaginn, enda er efnahagurinn fall af heilbrigði samfélagsins. Um þetta snýst pólitíkin að mörgu leyti, virðulegi forseti, eða ætti öllu heldur að snúast: Að taka ákvarðanir um að bæta líf fólks. Stjórnvöld þurfa að geta bent á líf hverra það ætlar að bæta með hvaða aðgerðum. Fjármagn sem fer í eina aðgerð getur víst ekki farið í aðra. Og þar, virðulegi forseti, liggur forgangsröðunin.

Ég taldi hér að framan upp þær breytingartillögur sem var hafnað fyrir jól. Fyrir liggur breytingartillaga meiri hlutans, sem birtist nú við 3. umr. fjárlaga, sem kostar 7,2 milljarða kr. Lykilatriðið er þetta: Þarna liggur pólitíkin. Þarna er forgangsröðunin. Eitt er alla vega víst: Miðað við teknókratísku rökin frá fjármálaráðuneytinu er ákvörðunin um framlengingu Allir vinna ekki byggð á hreinum efnahagslegum rökum. Þetta er fyrst og fremst pólitísk forgangsröðun um hvar á að bæta lífsskilyrðin, sem er gott og vel ef það væri bara viðurkennt. Þessi ráðstöfun væri ekki mín fyrsta forgangsröðun ef einungis væri um 7 milljarða kr. svigrúm að ræða, sem er svo sem miklu stærri spurning, þ.e. hvar þetta raunverulega svigrúm liggur. En þarna liggur líka pólitíski ágreiningurinn, algerlega óháð efnahagslegum staðreyndum.