fjárlög 2022.
Virðulegur forseti. Það er afar ánægjulegt að fá að standa hér við ræðupúlt hins háa Alþingis í fyrsta sinn og taka þátt í störfum þingsins. Sá sem hér stendur hefur fylgst með umræðum um fjárlagafrumvarpið þar sem farið hefur verið yfir forsendur og mikilvægi þess að fjárlög fái lýðræðislega umfjöllun sem þeim ber. Af fjárlögunum má ráða hvernig stjórnmálaflokkarnir koma stefnu sinni á framfæri, hver forgangsröðun stjórnvalda er hverju sinni og hvaða gildi ráða för. Þrátt fyrir að ríkisstjórnin ráði ferðinni hverju sinni höfum við sem samfélag komið okkur saman um ákveðinn sáttmála og falið hinu opinbera að tryggja að ákveðnar grunnþarfir borgaranna séu uppfylltar. Okkur kann að greina á um leiðir og hversu langt eigi að ganga í þeim efnum og um það snúast kosningar og ekki síður gildi einstakra stjórnmálaflokka. Ég aðhyllist hugmyndafræði þar sem tekjur ríkisins eru notaðar til að draga úr ójöfnuði og til að jafna stöðu einstaklinga innbyrðis.
Í framlögðum fjárlögum hefur ríkisstjórnin kveðið á um starfsemi hins opinbera á komandi ári og því miður vantar töluvert upp á að ríkisstjórnin hafi gætt að samstöðu eða samábyrgð þannig að tekið hafi verið nægilegt tillit til hagsmuna þeirra sem lakast standa í samfélaginu. Þá er heldur ekki að sjá að fjármögnun þeirra kerfa sem eiga að tryggja grunnþarfir sé fullnægjandi.
Í heilbrigðisstefnu ríkisins til 2030 segir að heilbrigðiskerfið sé einn af hornsteinum samfélagsins, hluti af samfélagssáttmálanum. Um það erum við öll sammála og við höfum sem þjóð haft forsjá til að byggja upp opinbert heilbrigðiskerfi þannig að fjárhagur og búseta einstaklinga stýri ekki för varðandi meðferð og aðgengi að þjónustu. Til að þessi samfélagssáttmáli haldi er nauðsynlegt að tryggja fjármögnun kerfisins, fjármögnun sem tryggir ekki einungis að hægt sé að standa undir óbreyttum rekstri heldur líka að þróast og takast á við eðlilegar lýðfræðilegar breytingar og innleiða framfarir í meðferð sjúklinga. Það er á tímum sem þessum, þegar heimsfaraldur geisar og álag er á heilbrigðiskerfi landsins, þar sem auknar byrðar eru lagðar á heilbrigðisstarfsfólk og því gert að vinna hraðar og afkasta meiru, sem mikilvægi samfélagssáttmálans skín hvað skærast. Samkvæmt fjármálaáætlun og fyrirliggjandi fjárlögum blasir hins vegar við áframhaldandi vanfjármögnun heilbrigðiskerfisins, sem birtist í undirmönnun, flótta fagfólks og lengri biðlistum. Þessi sjónarmið hafa verið reifuð í nefndaráliti hv. þm. Kristrúnar Frostadóttur, fulltrúa Samfylkingarinnar í fjárlaganefnd, og vil ég taka sérstaklega undir þau sjónarmið sem þar koma fram og mikilvægi þess að fjárheimildir verði auknar til að tryggja almannaþjónustu í landinu. Slíkt myndi veita þeim heilbrigðisstarfsmönnum sem lagt hafa mikið á sig síðastliðin tvö ár stuðning og gefa þeim trú á að betri tíð sé í vændum.
Þá langar mig að ræða heilbrigðisþjónustu í landsbyggðarkjördæmunum. Það er ánægjulegt að sjá að heilbrigðisstofnanir á Suðurlandi og Suðurnesjum fái auknar fjárheimildir og aukin verkefni. Hins vegar vantar mikið til að þetta mikla vaxtarsvæði hafi fengið nægilegar fjárheimildir á undanförnum árum til að hægt sé að veita þá grunnheilbrigðisþjónustu sem íbúar eiga rétt á. Þannig vantar verulega upp á aðgengi að heilsugæslu og staðan er þannig í dag að fleiri þúsund íbúar þurfa að sækja þjónustu heimilislækna á höfuðborgarsvæðinu, þjónustu sem íbúar eiga rétt á í sinni heimabyggð.
Að lokum er rétt að nefna stöðu íþrótta- og æskulýðsstarfs í landinu. Íslenska ríkið hefur staðfest með sérstökum fjárframlögum, og nú í fjáraukalögum, mikilvægi starfsins. Sá sem hér stendur hefur starfað í íþróttahreyfingunni um langt skeið og er því málið ekki óskylt. Ég þekki vel af eigin reynslu hversu mikilvægt það er að börn og ungmenni geti stundað tómstundastarf við hæfi undir leiðsögn. Slíkt verður ekki dregið í efa né þau góðu samfélagslegu áhrif sem slíkt starf hefur sem forvarnir og sem fararnesti inn í framtíðina. Starf þetta er að stóru leyti unnið af sjálfboðaliðum og því miður verður sífellt erfiðara að manna það. Stuðningur hins opinbera við þetta starf er því afar mikilvægur. Í fjárlagafrumvarpinu er ekki gert ráð fyrir áframhaldandi stuðningi og er það miður. Í mínum huga er ljóst að áhrif faraldursins munu vara fram á næsta ár og þau áhrif munu takmarka möguleika íþrótta- og æskulýðsfélaga til að afla tekna með fjáröflunum og hefðbundnu starfi.
Virðulegur forseti. Ég hefði talið rétt að gera ráð fyrir því í fjárlögum að félögin þurfi viðbótarfjármagn á næsta ári til að geta haldið áfram að reka það metnaðarfulla starf sem byggt hefur verið upp hérlendis á undanförnum áratugum, starf sem þjóðin hefur getað verið stolt af, starf sem þjappar samfélaginu og þjóðinni allri saman með reglulegu millibili. Nú má vera að meiri hluti þings telji heppilegra að taka slíka fjárveitingu í gegnum aukafjárlög, líkt og samþykkt hefur verið á þessu þingi, þar sem 100 millj. kr. var varið til íþrótta- og æskulýðsstarfs vegna tekjumissis; upphæð sem nægir reyndar engan veginn til að bæta þá fjáröflun sem gengið hefur úr skaftinu á þessu ári. En gott og vel. Þetta eru fjármunir sem félagasamtökin munar um. Það er hins vegar þannig að fyrirsjáanleikinn við þennan rekstur sem annan er mikilvægur og sakna ég þess að fyrir liggi í upphafi árs að komið verði til móts við það tjón sem liggur fyrir að koma mun til á næsta ári. Samkvæmt könnun UNICEF hafa um 17% barna og ungmenna hérlendis ekki aðgengi að skipulögðu æskulýðsstarfi og það sem er áhyggjuefni er að það er einkum á barnmörgum heimilum, á heimilum þar sem atvinnuþátttaka er lág og meðal barna og ungmenna sem búa með foreldrum í leiguhúsnæði þar sem þátttakan er hvað minnst. Það er því ánægjulegt að sjá í fjárlögum áframhald á sérstökum stuðningi við tekjulægri fjölskyldur sem hefur það að markmiði að auka tækifæri þeirra sem tekjulægri eru til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Það er styrkur sem nær til um 13.000 grunnskólabarna. Hins vegar er verra að sjá að nýtingarhlutfallið á þessum styrk í nóvember var einungis um 50%. Gera þarf bragarbót á því að upplýsa foreldra um þennan stuðning og óskandi að forsendur sem liggja fyrir fjárlögum, um 80% nýtingu, náist. Það er einmitt þessi hópur sem fátækt kemur verst niður á, börn og ungmenni sem búa við aðstæður sem þau hafa enga stjórn á eða möguleika á að bæta úr.
Að lokum vil ég nefna að ég sakna þess að sú góða tillaga sem Framsóknarflokkurinn kom fram með fyrir kosningar, þess efnis að ríkið myndi styðja við tómstundir barna með 6.000 kr. á ári, verði að veruleika. Reyndar hefði ég talið heppilegra að gera róttækar breytingar á barnabótakerfinu og hækka greiðslur til barnafjölskyldna en úr því sem komið er er ljóst að slíkar breytingar verða ekki gerðar hvað sem síðar verður. Það breytir því ekki að tillaga um 6.000 kr. myndi auka möguleika barna og ungmenna á að stunda tómstundir sem þau kjósa.
Virðulegur forseti. Það er ljóst að í framlögðu frumvarpi sjást ekki miklar breytingar á forgangsröðun frá síðasta kjörtímabili og er það miður. Ég vonast til að sjónarmið og gildi sem byggjast á jafnrétti og samstöðu hljóti meira vægi á komandi árum og við berum gæfu til að hlúa að samfélagssáttmálanum sem hér hefur verið við lýði.