152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[14:45]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við afgreiðum nú fljótlega frá okkur fjárlög næsta árs. Meginmarkmið ríkisfjármálaáætlunar fólust í því að vaxa út úr kreppunni sem leiddi af kórónuveirufaraldrinum og sem við erum því miður enn að glíma við. Leiðarljós áætlunarinnar voru svigrúm í krafti árangurs í ríkisfjármálum, áhersla á nýsköpun og innviðauppbyggingu og að létta byrðum af fólki og fyrirtækjum. Arðsemi og atvinnusköpun var höfð í fyrirrúmi við fjárfestingar og skuldasöfnun stöðvuð á áætlunartímanum. Þessi leiðarljós eru enn til staðar og ég held að þessi fjárlög hér varpi góðu ljósi á þessar áætlanir ríkisstjórnarinnar sem ég styð heils hugar.

Það er áhugavert að horfa til síðasta árs og þeirra hagspáa sem fram hafa komið á síðasta ári. Ég held að hver ein og einasta spá hafi ekki ræst. Alltaf virtist í spánum myrkrið vera meira en raunveruleikinn sýndi svo síðar, líklega vegna þess að aðgerðir ríkisstjórnarinnar skiluðu árangri. Við náðum árangri eins og stefnt var að. En það er ekki þannig að velsæld einstaklinganna í samfélaginu byggist bara á hagvexti. Þess vegna er svo mikilvægt að við erum núna að vinna líka með markmið um velsældarhagkerfi. Við þurfum að gera það áfram. Við sjáum þess skýr merki í síðustu fjármálaáætlun og sjáum þess líka merki í fjárlagafrumvarpinu núna en ég vil sjá enn þá skýrari merki í nýrri fjármálaáætlun sem við sjáum í upphafi næsta árs.

Mig langar líka að ítreka það sem fram kom í nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar um mikilvægi þess að Stjórnarráðið fari í markvisst endurmat útgjalda og ýti enn frekar undir verkefnið Stafræn þróun. Við sjáum töluvert mikinn árangur af þeim aðgerðum. En, virðulegur forseti, ég vil líka fara að sjá árangur þeirra aðgerða í fjárlögunum sjálfum og að við sjáum fram á þann mikla sparnað og þá miklu hagræðingu sem er að hljótast af stafrænni þróun Stjórnarráðsins og allrar opinberrar þjónustu.

Virðulegur forseti. Ég verð líka að fá tækifæri til að koma inn á skilavegi, mál sem ég hygg að flestum þyki býsna flókið. Bráðabirgðaákvæðið sem við hér á Alþingi höfum framlengt alla vega í tvígang, ef ekki þrígang, fellur úr gildi um þessi áramót. Sveitarfélögin, sérstaklega þau á höfuðborgarsvæðinu, eru ósátt við þessa stöðu. Ég tek undir með hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur sem sagði hér áðan að við vonum að það náist samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um þetta mál. Við vitum að það er búið að ná samkomulagi um ástand þessara vega en nú er uppi ágreiningur um framtíðarrekstrarkostnað. Í þessu samhengi vil ég ítreka mikilvægi þess að við flýtum okkur varðandi þróun á framtíðargjaldtöku fyrir akstur. Við ræddum hér áðan um bifreiðagjöldin og svona — nú vantar mig orðið, virðulegur forseti — við eigum að ýta undir umhverfisvænni orkugjafa. (Gripið fram í: Ívilnanir.) Ívilnanir, þakka þér fyrir, hv. þingmaður, ívilnanir var nákvæmlega orðið sem ég var að leita að. Nú eru ívilnanir að breytast varðandi tengiltvinnbílana og við höfum sett okkur stór markmið um að skipta alveg yfir í hreina orkugjafa og ég vil ýta undir það. Það segir okkur líka að til lengri tíma litið þá verðum við að huga að því hvernig skattheimta eða gjaldtaka á að vera af bifreiðum eða akstri. Ég held að það sé einsýnt að sveitarfélögin þurfi að fá hluta af þeirri gjaldtöku. Þeir tekjustofnar sem sveitarfélögin hafa í dag eru eingöngu útsvar og fasteignagjöld og þau þurfa meiri og sterkari tekjustofna til að standa undir þeim útgjöldum og þeirri þjónustu sem þeim er lögum samkvæmt falið að veita.