breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Ég flyt hér nefndarálit um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2022 frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Frumvarpinu var vísað aftur til nefndarinnar að lokinni 2. umr. og hefur nefndin fjallað um málið að nýju. Erindi bárust frá Lífeyrissjóði Tannlæknafélags Íslands, Ólafi K. Ólafssyni og Seðlabanka Íslands.
Í erindi Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands kemur fram að breytingartillaga meiri hluta nefndarinnar við 11. gr. frumvarpsins hreyfi ekki við föstu gjaldi á sjóðum með hreina eign til greiðslu lífeyris undir 15 milljörðum kr. Með breytingunni hækki eftirlitsgjald sem lagt er á lífeyrissjóðinn úr 4.135.018 kr. í 4.178.335 kr.
Í nefndaráliti meiri hlutans við 2. umr. kemur fram að meiri hlutinn telji ekki forsendur fyrir því að þáttur fastagjalds í heildarálagningu lífeyrissjóða verði hækkaður með þeim hætti sem lagt var til í frumvarpinu, því sé lagt til að hlutfall fastagjaldsins af heildarálagningu verði áfram 60%. Nefndin óskaði eftir afstöðu ráðuneytisins og Seðlabanka Íslands um það hvort forsendur væru til þess að lækka hlut fastagjaldsins á sjóði með hreina eign til greiðslu lífeyris undir 15 milljörðum kr. Meiri hlutinn telur ekki forsendur til að lækka fastagjald á lífeyrissjóði með eignir undir 15 milljörðum kr. enda sé það mat Seðlabankans að kostnaður við beint eftirlit með lífeyrissjóði nemi að lágmarki 4.000.000 kr. á ári.
Nefndin hefur fjallað að nýju um breytingar á ívilnunum vegna innflutnings tengiltvinnbifreiða samkvæmt lögum um virðisaukaskatt sem að óbreyttu falla niður eftir að samtals 15.000 tengiltvinnbifreiðar, sem notið hafa ívilnana, hafa verið skráðar á ökutækjaskrá. Líkt og fram kemur í áliti meiri hluta nefndarinnar við 2. umr. telur meiri hlutinn ekki forsendur til breytinga á fyrirkomulagi ívilnana vegna tengiltvinnbifreiða að svo stöddu, enda kalli breytingar á því á víðtækari endurskoðun, m.a. með hliðsjón af ríkisstyrkjareglum og skuldbindingu íslenskra stjórnvalda til þess að tilkynna breytingar á fyrirkomulaginu til Eftirlitsstofnunar EFTA.
Meiri hlutinn beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka til skoðunar hvort tilefni sé til þess að framlengja framangreindar ívilnanir með einhverjum hætti, eða gera breytingar á fyrirkomulagi þeirra, áður en 15.000 tengiltvinnbifreiðamarkinu verði náð.
Varðandi virðisauka og endursölu bílaleigubíla vil ég taka hér fram að vilji er fyrir því að það verði skoðað heildstætt á nýju ári í samráði við skattaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Að framansögðu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt. Þetta er ritað á Alþingi 28. desember 2021. Undir álitið rita: Guðrún Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir.