152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:09]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir framsöguna vegna þess nefndarálits sem hér er lagt fram. Það kemur formanninum væntanlega ekki á óvart að sá sem hér stendur varð fyrir töluverðum vonbrigðum með þessa afgreiðslu nefndarinnar. Mig langar til að spyrja hv. formann í fyrsta lagi í tengslum við það sem kemur fram í nefndarálitinu og hv. formaður fór yfir að hluti af því að ekki er talin forsenda til að taka málið upp eða breyta um kúrs kalli þessar breytingar, eins og segir hérna, á víðtækari endurskoðun, m.a. með hliðsjón af ríkisstyrkjareglum og skuldbindingu íslenskra stjórnvalda til að tilkynna breytingar á fyrirkomulagi til Eftirlitsstofnunar EFTA. Að hvaða leyti er þetta mál öðruvísi vaxið en þær breytingar sem nefndin gerir á Allir vinna-regluverkinu núna í meðförum sínum? Það er í fyrsta lagi.

Í öðru lagi segir hér, með leyfi forseta:

„Meiri hlutinn beinir því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka til skoðunar hvort tilefni sé til þess að framlengja framangreindar ívilnanir með einhverjum hætti …“

Telur hv. formaður að það sé vænlegt til árangurs að spyrja þann ráðherra sem var að leggja til í frumvarpinu að þetta yrði ekki gert hvort gera eigi þetta á nýju ári? Eru einhverjar líkur til þess að niðurstaða þess ágæta ráðherra verði önnur á nýju ári heldur en núna þegar er raunverulega búið að taka ákvörðun um að fella ívilnunina niður? Við byrjum á þessu.