breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvar. Ég tel að það geti vel verið vænlegt til árangurs að beina þeim tilmælum til ráðherra. Það er öllum ljóst að ríkisstjórnin hefur efnt til skuldbindinga varðandi losun kolefnis og sett sér mjög metnaðarfull markmið um að hér verði stefnt að kolefnishlutleysi árið 2040 og að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti árið 2050. Þetta er verkefnið sem blasir við okkur og þá hlýtur spurningin að vera: Hvernig ætlum við að gera það? Ein af leiðunum og ein sú árangursríkasta er að fara í að skipta um orkugjafa sem þýðir að við þurfum að breyta samgönguflota okkar, bæði bílum, skipum og flugvélum. Það er verkefnið sem blasir við okkur. Búið er að taka ákvörðun um að við ætlum að hverfa frá jarðefnaeldsneyti yfir í hreina, græna og sjálfbæra orku. Komið hefur fram að það inniber gríðarlegan sparnað, hátt í 100 milljarðar á ári sem við getum sparað okkur í innkaupum á jarðefnaeldsneyti. Hins vegar vil ég benda hv. þingmanni á það, og það kom líka fram í umræðunni í gær, að ég hef ákveðnar áhyggjur af því að innviðirnir séu ekki komnir á þann stað sem við þurfum til að rafbílavæða allt landið. Þá getur maður spurt sig: Hvað á að koma á undan; eggið eða hænan?