152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka svarið frá hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar. Það virðist vera með þetta mál, eins og svo oft vill verða þegar meiningin er góð, að þær aðgerðir sem gripið er til ganga beinlínis gegn þeim markmiðum sem ætlunin er að ná fram. Ég er þess fullviss að sú breyting sem hér er verið að gera muni hægja á orkuskiptum í samgöngum. Af hverju segi ég þetta? Í fyrsta lagi blasa áhrifin á þá sem flytja inn þessar bifreiðar auðvitað við öllum sem vilja sjá. Í öðru lagi mun þetta væntanlega orsaka það að bílaleigur, sem eru mikilvægur þáttur í endursölumarkaði allra nýlegra bíla, munu væntanlega ekki kaupa einn einasta tvinnbíl á nýju ári. Það mun setja verulegan þrýsting á að afsetja, bara undir þeim skattareglum sem hv. þingmaður vísar til varðandi endurgreiðsluvirðisaukaskatt. Það mun koma fram verulegur slíkur þrýstingur. Það sem mun gerast á endanum er að uppbygging bæði dreifikerfisins og bílaflotans, sem er annaðhvort tengiltvinnbílar eða að fullu með rafmagni, mun eiga sér stað hægar en ef þessi brú væri til staðar. Af því að ég veit að hv. þingmaður hefur skoðað þetta, telur hún að þessi breyting verði til þess að flýta orkuskiptum í samgöngum á Íslandi hvað einkabílinn varðar, sem sagt fjölskyldubílinn? Í ljósi þess að við vitum að umboðin fá til að mynda ekki þann fjölda sem líklegt er að eftirspurn verði eftir, að tengiltvinnbílunum frátöldum, telur formaður efnahags- og viðskiptanefndar að þetta flýti uppbyggingunni eða kann að vera (Forseti hringir.) að á nýju ári fjölgi skráningu dísil- og bensínbíla (Forseti hringir.) sem hafa að engum hluta rafmagn sem orkugjafa?