breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegi forseti. Tel ég að þetta muni flýta orkuskiptum? Ég er ekki sá spámaður að ég geti séð inn í þá kristalskúlu sem margir horfa í nú í lok árs, hvernig framtíðin muni blasa við okkur. Ég sé það ekki alveg fyrir. En þær raddir hafa heyrst að það eigi ekki að vera ívilnun eða niðurgreiðsla á ökutækjum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Það eru ein rökin. Önnur rökin eru þau hvort við þurfum á því að halda að hér sé þá einhver millileikur sem við kjósum að líta svo á, alla vega hingað til, að hafi verið tengiltvinnbílar sem geti þá brúað bilið þangað til innviðir okkar verði komnir þangað að þeir ráði við það. Maður getur alveg velt því fyrir sér að bílaleigurnar okkar stýra að miklum hluta eftirmarkaðnum eða sölu notaðra bíla. Bílaleigur landsins hafa verið að flytja inn um helming af nýskráðum bílum á Íslandi þannig að það liggur í hlutarins eðli. Eftir því sem ég kemst næst af upplýsingum frá þeim hefur verið vandkvæðum bundið að leigja 100% rafbíla. Ferðamenn sem ætla að fara hringinn í kringum landið eða í lengri ferðir veigra sér við því. Ég er talskona þess að við sjáum uppbyggingu ferðaþjónustu og uppbyggingu atvinnulífs hringinn í kringum landið. Þess vegna verður að gera gangskör í því að byggja hér upp innviði fyrir rafbíla og (Forseti hringir.) þá munum við sjá hér mjög fljótt orkuskipti, að ég tel.