breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Frú forseti. Ég vil koma inn á þrjú atriði svona að meginstofni til, kannski bætist eitthvað aðeins við í ræðu minni. Ég vil í fyrsta lagi koma inn á breytingartillögur sem við í Miðflokknum leggjum hér fram milli 2. og 3. umr. og síðan langar mig til að koma aðeins inn á mál sem hafa verið hér nokkuð rædd sem snúa að ívilnunum tengiltvinnbíla og breytingum sem eru að verða þar á og viðbrögð efnahags- og viðskiptanefndar við þeim og þeirri umræðu sem hefur átt sér stað í þeim efnum.
Hv. efnahags- og viðskiptanefnd lét frá sér nefndarálit nú í dag sem undir rita hv. þingmenn stjórnarflokkanna Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður nefndarinnar, Ágúst Bjarni Garðarsson, Diljá Mist Einarsdóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir. Þar segir um þetta efni, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur fjallað að nýju um breytingar á ívilnunum vegna innflutnings tengiltvinnbifreiða samkvæmt lögum um virðisaukaskatt sem að óbreyttu falla niður eftir að samtals 15.000 tengiltvinnbifreiðar, sem notið hafa ívilnana, hafa verið skráðar á ökutækjaskrá. Líkt og fram kemur í áliti meiri hluta nefndarinnar við 2. umræðu telur meiri hlutinn ekki forsendur til breytinga á fyrirkomulagi ívilnana vegna tengiltvinnbifreiða að svo stöddu …“
Ég er hræddur um að það eigi eftir að koma á daginn á nýju ári að þetta er ekki hugsað til enda. Ég held að með því að stöðva ívilnunina hérna sé beinlínis verið að fara í aðgerð sem mun hægja á orkuskiptum í samgöngum. Ég held að það liggi þannig, ef við horfum á það sem blasir við, takmörkun á afhendingargetu framleiðenda og bílaumboða á 100% rafbílum, þá brú sem felst í tengiltvinnbílunum, sérstaklega gagnvart landsbyggðinni, ef við horfum á þá aðlögun fólks að læra að nýta sér rafmagnsbílana sem felst í þessu, ef við horfum á uppbyggingu innviðanna, hversu skammt þeir eru raunverulega á veg komnir hvað það varðar að ráða við þessa umbreytingu, orkuskipti í samgöngum, þá er allt sem bendir til þess að það sé hreinlega alveg galið að ætla sér að reyna að ná þeirri breytingu fram með því að slá tengiltvinnbílana út úr ívilnanagrúppunni núna um áramótin. Áramótin eru að ganga í garð bara eftir nokkra daga þannig að þessi ívilnun er varðar tengiltvinnbílana er búin. Það sem tekur við verður væntanlega markaður á næsta ári þar sem umboðin munu þurfa að stýra framboðinu meira inn á sparneytna, sem er auðvitað jákvætt, bensínbíla og dísilbíla sem í engu notast við rafmagn sem orkugjafa. Eins og gögn Bílgreinasambandsins benda til og þær umsagnir sem borist hafa um þetta frá þeim aðilum sem starfa á þessum markaði þá er ég hræddur um að að ári liðnu munum við standa hér og horfa á tölur þar sem hefur orðið afturför í orkuskiptum í samgöngum á Íslandi, sérstaklega hvað varðar fólksbíla. Ef það er markmiðið er ágætt að það komi bara fram því það er því miður svo oft í aðgerðum sem eru réttlættar með hagsmunum loftslagsins, sem getur alveg verið í lagi, að þær ganga beinlínis gegn þeim markmiðum sem menn segjast ætla að ná fram. Þetta er eitthvert skýrasta dæmið sem hægt er að hugsa sér um það. Hér er þessi breyting gerð og hún mun hægja á orkuskiptum í samgöngum. Það er engum blöðum um það að fletta. Þetta er vond ákvörðun og hv. efnahags- og viðskiptanefnd hefði átt að gera þetta betur.
Það er auðvitað engin skýring eins og segir hér í nefndarálitinu um að viðhalda ekki fyrirkomulaginu, með leyfi forseta, „enda kalli breytingar á því á víðtækari endurskoðun, m.a. með hliðsjón af ríkisstyrkjareglum og skuldbindingu íslenskra stjórnvalda til þess að tilkynna breytingar á fyrirkomulaginu til Eftirlitsstofnunar EFTA“. Ef þetta er alvöru vandamál þá bara gera menn þetta, ganga til þessa verks. En það liggur fyrir að ESA er nú þegar búið að stimpla fyrirkomulagið eins og það var. Ég held að stjórnvöld hafi oft þrammað um á þynnri ís en í þessu máli ef framlengingin hefði verið ákveðin hér án þess að ræða áður við Eftirlitsstofnun EFTA. Eftirlitsstofnunin er búin að fara í gegnum þetta, núverandi reglur sem eru að renna úr gildi núna um áramótin hafa þennan stimpil. Þannig að þetta er auðvitað bara fyrirsláttur.
Annað sem hefur komið upp í þessari umræðu er að fjárlaganefnd sé búin að loka sinni vinnu en eins og kom fram hér í svari hv. formanns fjárlaganefndar áðan í umræðu um fjárlög við andsvari mínu þá yrði þetta bara gert með því að nefndin er kölluð saman og hún leggur fram breytingartillögu sem er tekin inn hér með afbrigðum. Það er algerlega vandalaust. Þetta er einhver undansláttur. Hvað veldur? Er svona mikil harka? Nú veit ég ekki, eigum við að reikna með að það sé mikil harka eins stjórnarflokksins? Eigum við að giska á að það sé þingflokkur Vinstri grænna sem er harður á móti? Ég trúi ekki öðru en að þingflokkar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafi skilning á þessu máli. Annað stenst enga skynsemisskoðun, auðvitað gera þingflokkarnir það.
Ef það er staðan að við erum hér að samþykkja mál sem gengur beinlínis gegn því að ná árangri í orkuskiptum í samgöngum þá er þessi ríkisstjórn varla á vetur setjandi. Ef þröngsýn sjónarmið, eins og virðast ráða í þessu máli, stýra ferð og þingflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar kyngja aftur og aftur gagnvart málum sem blasir við að ríkisstjórnin er rangstæð í eins og þessu, þegar hérna er beinlínis verið að hægja á orkuskiptum í umferð, þá hljóta þingflokkar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að gefast býsna fljótt upp. Það veldur mér verulegum vonbrigðum að þetta sé niðurstaðan. Þingmenn stjórnarflokkanna munu hér síðar í dag fá tækifæri til að fella tillögu Miðflokksins um að halda þessum reglum óbreyttum frá því sem nú er og ég vona að mönnum snúist hugur fyrir þann tíma. En í öllu falli, ef vilji er til þess að finna einhverja millileið sem getur áfram stutt við orkuskipti í samgöngum og menn taki ekki nokkur skref aftur á bak, eins og blasir við að verði raunin á næsta ári, þá mun ég styðja slík mál og mun fagna þeirri framgöngu meiri hluta fulltrúa í efnahags- og viðskiptanefnd. Það væri skynsamlegt og þá mun sá sem hér stendur draga sína eigin tillögu til baka.
Til viðbótar við þessi atriði er snúa að ívilnunum fyrir tengiltvinnbíla langar mig að nefna breytingartillögu sem Miðflokkurinn leggur fram núna milli 2. og 3. umr. þar sem lagt er til að frítekjumark ellilífeyrisþega verði hækkað í 6 millj. kr. á ári, 500.000 kr. á mánuði, í stað 2,4 milljóna eins og frumvarpið gerir ráð fyrir. 2,4 milljónir er skref í rétta átt frá 1,2 milljónum á ári og því ber að fagna. En við verðum að horfa heildstætt á kostnaðinn sem af þessu hlýst. Ég hef gagnrýnt það reglulega að fjármálaráðuneytið horfir eingöngu á kostnaðarþáttinn af þessu en í engu er tekið tillit til þeirra tekna sem af slíkri hækkun frítekjumarksins hlýst. Það er auðvitað fráleit nálgun að hér standi fyrirsvarsmenn stjórnarflokkanna og haldi því fram að það séu bara útgjöld af því að hækka frítekjumark eldri borgara. Eldri borgarar eru ekki að fara að setja hverja krónu undir koddann og láta hana stoppa þar. Þetta fer allt meira og minna í neyslu og skapar ríkinu áfram tekjur. Ég vil halda til haga þeirri gagnrýni sem ég hef sett fram og minnti á í umræðu um fjárlög áðan þar sem við vorum að samþykkja töluverðar breytingar á lögum um opinber fjármál, það verður að koma á þannig mekanisma fyrir okkur þingmenn að fjármálaráðuneytinu sé uppálagt að sýna á báðar hliðar peningsins, ef svo má segja, það sé bæði tekið tillit til þeirra útgjalda sem af ákvörðun hljótast og þeirra tekna sem líklegt er að af henni skapist. Meðan svo er ekki þá erum við alltaf að horfa á bjagaða mynd.
Síðan til viðbótar verður hér tillaga frá okkur í þingflokki Miðflokksins, eins og ég kom inn á áðan, um að framlengja ívilnun tengiltvinnbíla út árið 2022 án þess að gera neinar hliðaraðlaganir. En ég myndi fagna því ef fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna kæmu fram með tillögu sem væri í þá áttina, þó að skilyrðin yrðu ekki framlengd að fullu. Ég hef dregið til baka tillögu er snýr að kolefnisgjaldinu. En efnislega er afstaða okkar í Miðflokknum óbreytt, það er skattur sem ætti að lækka eða fella hreinlega niður, enda hefur það ítrekað komið fram í svörum ráðherra hér á liðnu kjörtímabili að stjórnvöld hafa enga hugmynd um áhrif þessa skatts. Þetta er bara hreinn viðbótarskattur á fyrirtæki og landsmenn alla og við eigum að draga slíkt til baka í stað þess að setja skattahækkanir í búning grænna lausna og grænna skatta sem eru ekkert annað en almennir skattar. Ég ætla að láta þetta duga í bili.