breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Ég held að ég geti tekið undir ýmislegt, auðvitað ekki allt, sem þar kom fram. Við hv. þingmaður höfum meðal annars rætt þessi mál hér á göngum Alþingis. Það sem er í þessu nefndaráliti frá meiri hlutanum og hv. þingmaður skautaði kannski fram hjá er að við beinum því til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að taka þetta heildstætt til endurskoðunar og hvort tilefni sé til að framlengja þær ívilnanir sem verið hafa í gangi vegna tengiltvinnbifreiða og það áður en þessum 15.000 bíla kvóta verði náð. Ég held að það sé mjög mikilvægt að gera það. Ég get alveg tekið undir það sem fram kemur að þetta er auðvitað hluti af markmiðum ríkisstjórnarinnar þegar kemur að loftslagsmálum. Ég vil spyrja hv. þingmann, þar sem þetta er niðurstaða nefndarinnar, hvaða tölu hann hefur í huga varðandi þennan kvóta, hvort við erum að tala um að fara í 17.000, 18.000 eða 20.000. Hvaða tölu hv. þingmaður hefur í huga?