152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[15:39]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ágústi Bjarna Garðarssyni fyrir andsvarið. Varðandi þessar tölur, ef ég byrja á að svara því, þá held ég að 20.000 væri skynsamlegt viðmið til að brúa það bil sem við horfum til að sé nauðsynlegt að brúa til að samfella geti orðið í þessum orkuskiptum hvað fólksbílaflotann varðar. Með fyrirvara um að það sé misminni held ég að ég hafi þá tölu frá Bílgreinasambandinu. Það verður að vera smáfyrirvari á því svari mínu en ég held að tölurnar séu þaðan og þær passa við þau gögn sem liggja fyrir núna um þegar skráða bíla, með hvaða hætti sá taktur hefur verið og það tímabil sem Bílgreinasambandið hefur talað fyrir að þurfi að brúa. Þess vegna hef ég talið skynsamlegt að kvótinn verði settur upp í 20.000 bíla úr 15.000.

Varðandi það sem hv. þingmaður sagði að ég hefði skautað fram hjá þá var það nú ekki svo. Ég kom inn á þetta í andsvari við hv. formann nefndarinnar fyrir stuttu um að meiri hlutinn beindi því til fjármála- og efnahagsráðherra að taka til skoðunar hvort tilefni væri til að framlengja framangreindar ívilnanir o.s.frv. Hversu líklegt er það til árangurs að beina þeirri fyrirspurn til þess ráðherra sem lagði til að fella þessar ívilnanir úr gildi að athuga nokkrum vikum seinna hvort ástæða sé til að taka þær upp aftur? Það er bara einhver undansláttur. Ég er hræddur um að það komi ekkert út úr því. Ég vona að ég hafi rangt fyrir mér, ég vona það innilega. En ég er hræddur um að það sé bara verið að kaupa sér frið.