breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er skemmst frá því að segja að ég er algerlega sammála þeirri nálgun að hnika til gildunum í þessum efnum. En ég held að það gerist af sjálfu sér. Nú er þessi svokallaða þriðja kynslóð tengiltvinnbíla með miklu meiri drægni á rafmagninu en sú kynslóð rafbíla sem kom fyrst með þessari tengiltvinnlausn og náði þá kannski einhverjum 15–30 km. En við erum að horfa á eina 80 km, plús/mínus 10, í flestum tilvikum núna, sýnist mér. Ég held að þetta gerist af sjálfu sér. Það er einmitt það sem við verðum að gera, að leyfa þessari þróun að eiga sér stað dálítið á forsendum þróunarinnar í tækninni. Hún á sér stað hjá stóru framleiðendunum. Það er orðin algjör bylting á milli fyrstu og þriðju kynslóðar hybrid-bíla. Ég væri mjög fylgjandi því að færa þetta viðmið til, en ég bara verð að viðurkenna að það kæmi mér mjög á óvart ef verið væri að flytja inn bíla í dag með mjög litla drægni. Ég verð að viðurkenna að ég þekki það ekki en ég held að þeir bílar séu varla framleiddar lengur, bara í ljósi þeirrar þróunar sem orðið hefur. En ég vona að það sé rétt mat hjá hv. þingmanni að enn sé von til að þetta verði fært til betri vegar því að eins og þetta liggur fyrir núna er verið að fara eins illa að þessu og nokkur kostur er. Eins og ég segi er beinlínis verið að hægja á orkuskiptum í samgöngum hvað fólksbílaflotann varðar. Ég tek undir og hvet hv. þingmann og félaga hans í hv. efnahags- og viðskiptanefnd að fylgja þessu máli eftir hvað varðar þá endurskoðun sem nefndin vísar til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra.