breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.
Virðulegur forseti. Við erum að ræða fjárlögin og að undanförnu höfum við sérstaklega verið að ræða um loftslagsmál. Það sem er kannski eitt það furðulegasta við okkur Íslendinga í loftslagsmálum er þessi ótrúlega hræsni að við höldum að við séum nafli alheimsins í sambandi við loftslagsmál. Því miður erum við það lítil að við erum varla mælanleg í því samhengi, en auðvitað ber okkur skylda til að taka á þeim málum. En á sama tíma og við tölum hér um loftslagsmálin, eins og við séum að gera eitthvað rosalega mikið í þeim málum, þá erum við að selja mengunarkvóta til kjarnorkuvera, kolabrennsluvéla og olíubrennslu. Hvað segir það um okkur? Jú, það er hræsni af okkur. Og á sama tíma og við þykjumst vera rosaleg í loftslagsmálum þá erum við að flytja ruslið okkar til útlanda og höldum að við séum svo ofboðslega umhverfisvæn að gera svoleiðis hluti.
En tölum um hitt sem hefur verið til umræðu hér, tengiltvinnbílana. Þar erum við líka komin í þessa ótrúlegu hræsnisferð að halda því fram að það sé ekki skynsamlegt að viðhalda ívilnunum sem varða tengiltvinnbíla. Fyrstu tengiltvinnbílarnir og tengiltvinnbílar sem eru komnir í dag eru gjörólíkir hlutir. Í nýjustu bílunum hefur maður jafnvel val um þrjá möguleika. Maður getur keyrt þá eingöngu á rafmagni, maður getur keyrt þá eingöngu á hybrid, þá er rafmagn og bensín notað, og síðan eingöngu á bensíni. Núna duga flestir bílarnir eingöngu á rafmagni frá 50 og alveg upp undir 100 km. Hvað segir það okkur, bara í samhenginu, ef við tökum venjulegan vinnandi mann sem er að fara í vinnu? Flestum innan höfuðborgarsvæðisins dugir eingöngu rafmagn úr og í vinnu. Og ætli venjulegur vinnandi maður sé að jafnaði að keyra bílinn sinn innan borgarmarkanna þannig að rafmagnið myndi duga? Ég myndi giska á að það væri svona frá 60 upp í 80% og jafnvel meira. Þar af leiðandi erum við að segja við þann hóp sem vill keyra á tengiltvinnbílum en eingöngu á rafmagni: Nei, við ætlum að stoppa það. Þið verðið að fara bara á rafmagn, ekkert annað. En á meðan við höfum ekki rafvætt þannig að nógu mikill fjöldi bíla komist að til að tengja sig hringinn í kringum landið þá erum við ekki tilbúin að fara eingöngu í rafmagnsbíla eins og allir vilja fá.
Og annað í þessu. Ef við tökum bara 50–80 km akstur þá erum við líka að segja við þá sem búa á Suðurnesjum og sækja vinnu í bænum að þeir geti farið á hleðslubíl í bæinn, hlaðið bílinn og farið svo aftur á hleðslunni heim. Og líka þeir sem búa í Hveragerði eða á Selfossi. Þannig að við erum að segja við þá sem búa úti á landi, þar sem innviðir í sambandi við rafmagnshleðslu eru ekki nógu góðir, að þeir geti farið allra sinna daglegu ferða innan síns bæjarfélags eingöngu á rafmagni. Ég veit um fólk sem býr úti á landi og notar eingöngu rafmagn á tengiltvinnbíl. Eina skiptið sem það notar bensín- eða dísilmótorinn er þegar það fer langar ferðir í bæinn.
Þannig að við sjáum að þetta er mjög hagkvæmt. En því miður held ég að það sé orðið of seint að breyta þessu. Hluti af þessu dettur út núna um áramótin og síðan á þetta að detta út varðandi 15.000 bíla. Þá erum við að tala um hækkanir upp undir tæpa milljón. Kannski er hægt að minnka það um helming og vonandi verður það gert vegna þess að það er heilbrigð skynsemi í því.
Ég tek undir og mun styðja breytingartillögu hv. þm. Bergþórs Ólasonar er þetta varðar vegna þess að það er bara heilbrigð skynsemi í því að halda þessari ívilnun áfram. Við verðum líka að átta okkur á því hverjir endurnýja bílana sína í dag. Ef við erum að tala um fólk sem er með allt upp í tíu ára gamla bíla, sem eyða 15–20 lítrum á hundraðið, og förum í tengiltvinnbíla, þá erum við að tala um eyðslu upp á kannski 1–2 lítra. Það er bara himinn og haf á milli 15–20 lítra eyðslu á 100 km eða 1–2 lítra og jafnvel ekki neitt þegar eingöngu er keyrt á rafmagni. Þannig að það er bara algjörlega heilbrigð skynsemi að gera þetta svona. Og síðan vitum við að þróunin er hröð. Og eins og við urðum vör við í fréttum í gærkvöldi þá er núna að koma fyrsta flugvélin sem flýgur eingöngu á rafmagni. Hún er komin til landsins. Samkvæmt þeim fréttum eru ekki nema 2–3 ár og þá erum við farin að fljúga innanlandsflug eingöngu á rafmagni. Við erum líka að koma skipum yfir í rafmagn. Við erum með skip sem siglir á rafmagni milli lands og eyja. Þróunin er hröð og ég held að það hefði verið til góðs ef við hefðum getað haft tengiltvinnbíla óbreytta út árið 2022.
Síðan er annað mál sem hv. þm. Bergþór Ólason kom inn á og það er um atvinnutekjur, að hækka frítekjumark atvinnutekna upp í 500.000 kr. á mánuði, 6 milljónir á ári. Þegar þú ert kominn upp í svona tölur þá breytir það engu, þá geturðu alveg eins sagt: Burt með allar takmarkanir. Það þarf ekki að setja neinar takmarkanir, það þarf ekkert vera 500.000, 600.000 eða 700.0000. Það á bara að vera: Þú vinnur og þú borgar skatta. Staðreyndin er sú að þegar þú ert kominn í þessar tekjur, ásamt því að fá eitthvað frá lífeyrissjóði, færðu hvort sem er ekkert frá Tryggingastofnun ríkisins vegna þess að það dettur út við um 700.000 kr. tekjur. Þarna erum við eiginlega að blekkja okkur. Það gildir eiginlega nákvæmlega það sama, þetta er það heimskulegasta sem nokkurn tíma hefur verið gert af nokkurri ríkisstjórn yfir höfuð, að letja fólk til að vinna og hindra það í að vinna. Nákvæmlega það sama gildir um öryrkjana þegar sagt er við þá að þeir fái bara 109.000 kr. frítekjumark. Það er eiginlega hálfgerður brandari. Það getur enginn unnið vegna þess að það skilar sér ekki. Út af skerðingum og keðjuverkandi skerðingum þá skilar það sér ekki. Aftur á móti er sagt á sama tíma: Ókei, þið eruð tilbúin að borga fólki til að vera heima fyrir nákvæmlega sömu upphæðina en ef það fer að vinna og borga skatta á móti þá má það ekki gera það. Eitt það heimskulegasta sem við gerum er að letja fólk til vinnu. Þeir tala út og suður. Í einni setningunni segja þeir: Við viljum ekki hækka frítekjumarkið. En í hinni segja þeir: Við þurfum einhvern veginn að fá öryrkja til að vinna meira.
Þetta eru ekki skynsamlegar tillögur frá ríkisstjórninni. En eins og ég segi er það staðreynd að við ættum að ryðja öllum hindrunum úr vegi. Það er hreinlega búið að sanna að það er hagkvæmt um 2–4 milljarða kr. að taka allt frítekjumark af atvinnutekjum eldra fólks. Síðan hefði verið mjög skynsamlegt líka ef við hefðum gert svipað fyrir öryrkjana og Svíar gerðu, leyft þeim að vinna skatta- og skerðingarlaust í 2–3 ár, bara til þess að sjá að þeir geti farið út á sínum forsendum en ekki á einhverjum þvinguðum forsendum þeirra sem vilja endurskoða almannatryggingalögin og pína upp einhverja starfsgetu.