152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[16:21]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Mig langar til að nýta tækifærið hér þar sem ég er að fara að greiða atkvæði í fyrsta skipti um fjárlög á Alþingi Íslendinga. Ég hef setið í fjárlaganefnd ásamt öðru góðu fólki og hafa undanfarnar vikur verið viðburðaríkar og afar lærdómsríkar. Við höfum þurft að vinna hratt og vel og vil ég hrósa hér öllum aðilum, nefndarmönnum fjárlaganefndar og starfsfólki, fyrir gott samstarf, góða samvinnu. Sér í lagi af því að ég er hérna uppi vil ég nýta tækifærið til að hrósa hv. þingmanni og formanni fjárlaganefndar, Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur, fyrir afar góða fundarstjórn og vinnu: Takk fyrir. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)