152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[16:22]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Fyrstu fjárlög þessarar ríkisstjórnar boða ekki gott fyrir baráttuna gegn loftslagsvanda. Þau boða ekki gott fyrir stöðu öryrkja og þau boða ekki gott fyrir sókn í húsnæðismálum, því miður. Hér er ansi bjöguð forgangsröðun þar sem 7 milljarðar eru settir í átak sem liggur fyrir að er þensluhvetjandi og óþarfi, en ekki fengust nema 150 milljónir aukalega í markmið um niðurgreidda sálfræðiþjónustu, sem við vitum að er mikil þörf á um þessar mundir í miðjum heimsfaraldri með þau áhrif sem hann hefur haft á geðheilsu þjóðarinnar. Það er bjöguð forgangsröðun í þessum fjárlögum, virðulegi forseti. Þau eru vissulega í takt við ríkisstjórn þessa minnsta samnefnara, eins og við höfum séð. Þau eru vond byrjun á þessu kjörtímabili.