152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

fjárlög 2022.

1. mál
[16:23]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa mörg orð um efnistök þessa frumvarps. Eftir mig liggja nokkur nefndarálit eftir vinnuna og mig langar að þakka nefndarfólki, formanni, fyrir áhugaverðar síðastliðnar vikur. Mig langaði bara til að koma hérna upp og taka það fram að þetta eru náttúrlega ótrúlegar aðstæður til að afgreiða 1.000 milljarða út úr svona batteríi. Þetta eru mín fyrstu kynni af fjárlagavinnu, en það hlýtur að teljast mjög sérstakt að þurfa að fara í svona yfirgripsmikla vinnu á svona litlum tíma. Ég segi þetta líka af virðingu við allt það fólk sem komið hefur á nefndarfundi til okkar sem hefur veitt okkur ómælanlega aðstoð og við höfum fengið mjög mikla viðbótarinnsýn í verkefnin sem við erum að vinna. Þess vegna sést það mjög augljóslega hversu mikið betri þessi vinna hefði getað orðið að mörgu leyti ef við hefðum haft meiri tíma. Þess vegna vona ég að við munum ekki sjá þetta ferli í þessu formi aftur og að næst verði kosið að vori.