152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2022.

3. mál
[16:30]
Horfa

Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Í fjárlögum er verið að hækka kolefnisgjald um 2,5%, sem er í raun lækkun á áhrifum þess ef litið er til 4% hækkunar á neysluvísitölu. Þessi breytingartillaga er aðeins hækkun í samræmi við tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um hækkun til þess að skatturinn geti haft þau áhrif sem hann á að hafa. Skattinn væri hægt að nýta til uppbyggingar á grænum efnahag eða einfaldlega greiða út og er raunhæf leið til þess að ná fram ótrúlega flottum markmiðum ríkisstjórnar í loftslagsmálum. Ég vona að þingið taki þetta mál alvarlega á nýju ári því að þetta er ein raunhæfasta leiðin sem fólk frá öllum hliðum stjórnmálanna getur komið sér saman um til að takast á við loftslagsvandann og færa hann í hendur markaðarins.