nýárskveðjur.
Frú forseti. Fyrir hönd okkar alþingismanna vil ég flytja forseta og varaforsetum þakkir fyrir samstarfið á þessu haustþingi. Einnig þakka ég forseta hlý orð í okkar garð og ég vil einnig fyrir hönd okkar færa starfsfólki Alþingis kærar þakkir fyrir góð störf og mikilvæga aðstoð.
Þingstörf síðustu daga og vikna hafa um margt verið óvenjuleg. Við erum mörg að takast á við ný verkefni. Sjaldan eða aldrei hafa fleiri varaþingmenn setið samtímis á þingi, sumir með nokkra reynslu eins og sá sem hér stendur, aðrir alls enga. Þeir hafa átt fullt í fangi með að átta sig á gangverki Alþingis á þessum háannatíma sem alltaf er fyrir jól og áramót en allt hefur þó farið vel að lokum. Mikið hefur mætt á starfsfólki þingsins sem hefur staðið sig með miklum sóma en ég held að á engan sé hallað þótt ég nefni sérstaklega forseta þingsins, Líneik Önnu Sævarsdóttur, sem hefur stýrt þinginu af skörungsskap síðustu daga. Það er ekki auðvelt að taka það kefli fyrirvaralaust en það hefur frú forseti gert með sóma.
Ég ítreka þakkir okkar til forseta og starfsfólks Alþingis og óska þeim og öllum þingmönnum farsæls nýs árs. Ég vil biðja þingmenn um að taka undir þau orð mín með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]