152. löggjafarþing — 19. fundur,  28. des. 2021.

þingfrestun.

[16:49]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 152. löggjafarþings, frá 28. desember 2021 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 17. janúar 2022.

Gjört í Reykjavík, 28. desember 2021.

Guðni Th. Jóhannesson.

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Bréf forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis fyrr í dag lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 152. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil nota þetta tækifæri til að þakka hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins fyrir gott samstarf við þessar óvenjulegu og erfiðu aðstæður á stuttu en snörpu desemberþingi. Við hugsum öll til þeirra sem hafa verið í einangrun og ekki fengið að taka þátt í þingstörfum vegna þess heimsfaraldurs sem geisar og þökkum fyrir öfluga innkomu varaþingmanna. Ég óska ykkur sem og landsmönnum öllum farsældar á komandi ári. Förum gætilega og hittust heil á nýju ári.