152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

framhaldsfundir Alþingis.

[15:02]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Gefið hefur verið út svohljóðandi bréf:

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 17. janúar 2022 kl. 15.00.

Gjört á Bessastöðum, 11. janúar 2022.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda 17. janúar 2022.“

Ég vil nota tækifærið hér að loknum lestri þessa bréfs og bjóða hæstv. forseta og hv. þingmenn velkomna til þingfundastarfa á nýju ári.