152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:09]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þetta er að sjálfsögðu mál sem varðar okkur öll. Ég vil leyfa mér að skipta að svari mínu upp í tvennt. Annars vegar er það sem varðar langtímastefnu fyrir heilbrigðiskerfið, því að hv. þingmaður nefndi það sérstaklega að þetta snerist ekki eingöngu um þennan heimsfaraldur og ég get tekið undir með honum um það. Þess vegna var einmitt mjög mikilvægt að hér var samþykkt í mjög góðu samkomulagi heilbrigðisstefna til ársins 2030 þar sem leiðarljós voru mörkuð fyrir heilbrigðiskerfið, ekki bara Landspítalann heldur einnig heilsugæsluna og heilbrigðisþjónustu úti um land og hver væru okkar leiðarljós, og eftir því hafa bæði fyrrverandi og núverandi heilbrigðisráðherra unnið. Þannig erum við búin að sjá marktæka aukningu á fjárframlögum, hvort sem er til spítalanna, heilsugæslunnar, nú eða í kostnaðarþátttöku sjúklinga, sem var hér með því hæsta sem gerist á Norðurlöndum fyrir síðasta kjörtímabil en stefnir í það að vera á pari við önnur Norðurlönd. Þannig að það er svo sannarlega að mörgu að hyggja og ég held við höfum öll verið sammála um þá aukningu sem hefur verið á fjárframlögum.

Síðan er það ástand sem heilbrigðiskerfi okkar sem og önnur heilbrigðiskerfi glíma við og birtist kannski svo skýrt hjá okkur af því að við búum í litlu landi með eitt aðalsjúkrahús og annað á Akureyri. Álagið hefur verið ómennskt, sagði hv. þingmaður, og ég get tekið undir það. En það hefur auðvitað líka verið gripið til margháttaðra aðgerða til að mæta sérstaklega spítalanum með því að opna ný rými víðs vegar í kerfinu. Ég get staðið hér og talið upp hjúkrunarrými, endurhæfingarrými, líknarrými, dagdvalarrými. Það er auðvitað búið að virkja bakvarðasveitina, það er búið að efla rafrænar lausnir, við höfum séð stórbreytingu, jafnvel byltingu í því á undanförnum misserum. Það er búið að opna tvö hágæslurými og fjögur önnur fyrirhuguð og unnið er að gerð farsóttaeiningar. Og af því hv. þingmaður nefnir kjör var gripið til umfangsmestu breytingar sem gerð hefur verið árum saman á vaktavinnufyrirkomulagi sem skiptir auðvitað heilbrigðisstéttir máli. Verkefninu er ekki lokið, en ég held að við þurfum að hafa langtímasýnina undir um leið og við grípum til skammtímaaðgerða.