152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:11]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Við hæstv. forsætisráðherra verðum bara að vera ósammála um það hvort nóg sé að gert. Ég held að hún sé að einhverju leyti að rugla saman fjárfestingu vegna bygginga og reksturs og rekstrarframlögum. Heilbrigðisstarfsfólkið okkar hefur náð ótrúlegum árangri í baráttunni við Covid en erfið staða í heilbrigðiskerfinu hefur líka áhrif á allt samfélagið í öðrum atvinnugreinum. Við erum komin að ákveðnum krossgötum núna þar sem við þurfum að lifa með þessu fyrirbæri í einhvern tíma og þurfum að velta fyrir okkur hvernig við getum komið í veg fyrir að aðrir hlutir grotni niður og jafnvel hverfi eða minnki. Ég spyr því hæstv. forsætisráðherra hvort henni finnist ekki líka nauðsynlegt að ráðast í enn frekari og kraftmeiri efnahagsaðgerðir, t.d. með því að framlengja hlutabótaleiðina í einhverri mynd og styrkja þannig úrræði fyrir fólkið í þeim atvinnugreinum sem eru að verða mjög illa úti, sem eru að verða verst úti og eru örmagna eftir ítrekaðan tekjumissi.