152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staða heilbrigðiskerfisins.

[15:12]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég vil nú segja það mjög skýrt að ég er ekki að rugla neinu saman hér í ræðustól Alþingis. Það skiptir hins vegar máli að við séum bæði að efla reksturinn og að ráðast í löngu tímabærar stofnframkvæmdir sem ég hefði haldið að hv. þingmaður væri mér sammála um að skiptu máli fyrir utan mjög mikilvæg tækjakaup, þannig að það hefur verið gefið í á öllum vígstöðvum.

Hv. þingmaður nefndi hér mönnun í fyrri spurningu sinni og landsráð um mönnun og menntun sem tók til starfa á síðasta kjörtímabili og hefur skilað fyrstu tillögum í lok nóvember. Tilgangurinn er að reyna að greina þessa þörf til lengri tíma. Það var eitt af áherslumálum þessara stétta að unnin yrði raunveruleg vinna í því að greina mönnunarþörf því hún er einn af stóru þáttunum.

Ég vil ítreka að mikið hefur verið gert, hæstv. heilbrigðisráðherra getur farið betur yfir það á morgun, bæði til skemmri tíma og lengri tíma. Hvað varðar efnahagsaðgerðir sjáum við að það er mikill bati í hagkerfinu og spár um atvinnuleysi hafa til að mynda ekki gengið eftir. Það hefur farið mun hraðar niður en spáð var, af því að við hv. þingmaður ræddum það á sínum tíma. En ég tel að aðgerðirnar þurfi að beinast að þeim geirum sem eru sannarlega í vanda. Ég get nefnt menningu og viðburðahald, ég get nefnt veitingageirann og við þurfum líka að horfa til ferðaþjónustunnar og hvað unnt er að gera.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir mildilega á að ræðutíminn er takmarkaður í þessum umræðum en bæði hv. fyrirspyrjandi og hæstv. forsætisráðherra fóru nokkuð fram yfir tímann í ræðum sínum.)