Persónuvernd.
Virðulegur forseti. Fyrir helgi birtist grein eftir Kára Stefánsson á Vísi sem var titluð: Svar til stjórnar Persónuverndar, þar sem hann gagnrýnir nýlega úrskurði stofnunarinnar um vinnubrögð Íslenskrar erfðagreiningar. Um þrjá úrskurði er að ræða en einn þeirra felur í sér að Íslensk erfðagreining hafi brotið lög þegar hún safnaði blóðsýnum úr sjúklingum á Landspítala án þess að leyfi vísindasiðanefndar lægi fyrir. Blóðsýnin voru tekin úr inniliggjandi sjúklingum á Covid-deild Landspítalans í kjölfar þess að Íslensk erfðagreining sótti um leyfi til vísindasiðanefndar en áður en leyfi nefndarinnar fyrir sýnatökunni lá fyrir. Kári er ósammála niðurstöðunni og útlistar ástæðurnar fyrir því í fyrrnefndri grein. En áhugaverðasti hluti greinarinnar sem Kári birtir er að með henni birtist einnig afrit af bréfi sem hæstv. forsætisráðherra skrifaði honum þar sem hún virðist taka undir sjónarmið Kára um að umræddur úrskurður sé rangur og segir m.a. að blóðsýni hafi verið tekin að beiðni sóttvarnalæknis og með Landspítalanum. Þó kemur fram í úrskurði Persónuverndar að blóðsýnatökuna, sem staðfest er að hafi farið fram, sé hvergi að finna í skrám Landspítalans og hún hafi þar af leiðandi einmitt ekki verið unnin með Landspítalanum eins og hæstv. forsætisráðherra heldur fram og þar af leiðandi hljóti lög hafa verið brotin við framkvæmd sýnatökunnar.
Forseti. Stofnanir sem gæta persónuverndar borgaranna eiga undir högg að sækja víðs vegar um heim á tímum kórónuveirunnar. Það er vegið að sjálfstæði þeirra og réttur borgaranna til friðhelgi einkalífs hefur verið skertur verulega. Þess vegna vekur það áhyggjur hjá mér að hæstv. forsætisráðherra virðist ætla að grafa undan sjálfstæði jafn mikilvægrar stofnunar og Persónuverndar og því hlýt ég að spyrja hæstv. ráðherra: Las hún úrskurði Persónuverndar áður en hún sendi umrætt bréf til Kára Stefánssonar? Óskaði hún eftir einhverjum gögnum eða skýringum frá Persónuvernd um úrskurðina áður en hún sendi umrætt bréf?