152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

Persónuvernd.

[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég las þennan úrskurð Persónuverndar, sem er stofnun sem heyrir ekki undir mig. Í svari mínu við bréfi Kára Stefánssonar kom fram að ráðherra hlutast ekki til um úrskurði Persónuverndar enda er hún sjálfstæð stofnun. Hins vegar kom fram í svari mínu, og það er samkvæmt upplýsingum sóttvarnalæknis að hann hafði forgöngu um að óska eftir þessari rannsókn. Hans upplýsingar voru þær að Landspítali og Íslensk erfðagreining væru að vinna að þessu sameiginlega og heilbrigðisráðuneytið hefur staðfest þann skilning við mig. Þannig að mínar upplýsingar eru þær að rannsóknin var unnin að beiðni sóttvarnalæknis til að vera grundvöllur ákvarðanatöku hvað varðar sóttvarnaráðstafanir í samvinnu Landspítala og Íslenskrar erfðagreiningar. Þetta hef ég eftir sóttvarnalækni og heilbrigðisráðuneyti, af því að mér fannst hv. þingmaður fyrst og fremst vera að spyrja um þessar heimildir mínar.