Persónuvernd.
Herra forseti. Já, það er rétt sem kemur fram hjá hv. þingmanni að væntanlega birtir Kári Stefánsson ekki bréfið allt, en það kemur fram í því að það sé hlutverk dómstóla að leggja mat á réttmæti einstakra úrlausna. Það er að sjálfsögðu bara það lagaumhverfi sem við búum til og eðlilega hlutast ráðherra ekki til um slíka úrskurði. Ég geri því ekki athugasemdir við það að því leyti. En hins vegar fannst mér brýnt að það kæmi fram að þær aðstæður sem þarna var unnið undir voru að hér var faraldur í uppsiglingu sem við höfðum litla sem enga vitneskju um. Við vorum öll að reyna að leggja okkar af mörkum og þar hefur Íslensk erfðagreining komið gríðarlega sterk inn í því að takast á við þennan faraldur. Aðdragandi þessarar rannsóknar var með þeim hætti sem ég lýsti. Það er auðvitað lykilatriði því að þar með má segja að þessi rannsókn hafi orðið ákveðinn grundvöllur fyrir áframhaldandi ákvarðanatöku um sóttvarnaráðstafanir. Það var minn skilningur á þessu og eins og ég segi þá byggi ég það annars vegar á samtölum mínum við sóttvarnalækni og síðan upplýsingum heilbrigðisráðuneytisins um að Landspítalinn hafi verið þátttakandi í þessari rannsókn með Íslenskri erfðagreiningu. (Forseti hringir.) Ég vil nota tækifærið, herra forseti, til að segja að það er algerlega (Forseti hringir.) ómetanlegt, framlag þessa fyrirtækis í baráttu okkar við þennan sjúkdóm.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir enn á takmarkaðan ræðutíma í þessum dagskrárlið.)