staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegi forseti. Gjalddagi vegna frestaðra staðgreiðslu launa- og tryggingagjalds er í dag, 17. janúar, og það er í dag sem við erum að byrja að ræða þetta frumvarp um enn eina frestunina á gjalddögum. Við í Samfylkingunni styðjum málið og munum greiða fyrir því að það fái skjóta en vandaða meðferð í þinginu. En við skulum hafa það alveg á hreinu að þetta er ekki eðlileg efnahagsstjórn. Svona á Alþingi ekki að vinna og ekki ríkisstjórnin heldur. Við höfum vitað í margar vikur, frá því löngu fyrir jól, að í ákveðnum atvinnugreinum ríkir algjört neyðarástand vegna faraldursins og vegna sóttvarnatakmarkana. Fjöldi fyrirtækja í veitingageiranum á erfitt með að standa í skilum. Við vissum þetta fyrir löngu. Hæstv. fjármálaráðherra sagði 10. desember að það þyrfti að hafa hraðar hendur til að styðja við veitingageirann og þar yrðu áfram í gildi sértækar aðgerðir. Hvað gerðist svo? Jú, Alþingi skrapp í jólafrí án þess að það hefðu verið kynntar neinar útfærðar aðgerðir og um leið voru fyrri úrræði að renna úr gildi. Núna er 17. janúar og þetta er allt og sumt, enn ein frestunin á gjalddögum. Ég spyr: Megum við ekki örugglega eiga von á því að það komi inn í þingið, helst á morgun eða hinn, frumvörp um einhvern alvörustuðning — þetta er bara frestun — einhvern alvörustuðning fyrir rekstraraðila sem berjast í bökkum vegna ástandsins?