staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Frú forseti. Það eru í vinnslu frekari aðgerðir með sambærilegri aðferðafræði og verið hefur en þó með þeim breytingum sem við teljum mikilvægt að taka tillit til og huga að með tilliti til þess hvar við erum stödd núna eftir þennan tíma. Ég geri ráð fyrir að fara með frumvarp í ríkisstjórn á morgun og ég vona að það frumvarp verði birt, tekið fyrir í þingflokki og í framhaldinu lagt fyrir þingið. En eins og hv. þingmaður fór yfir er ástæðan fyrir því að við erum komin með þetta frumvarp núna sú að eindagi er í dag og fyrsti dagur þings en frekari aðgerðir eru á lokametrunum og koma inn í þing í vikunni fyrir okkur til þess að fjalla um og setja í þinglega meðferð. Þau mál verða ekki dagsetningarmál samdægurs með sama hætti og þetta frumvarp.