staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta svar en auðvitað eru fleiri greinar sem glíma við alvarlegan rekstrarvanda, bæði vegna veirunnar sjálfrar og þeirra takmarkana sem hefur þurft að grípa til vegna hennar, t.d. menningargeirinn og listirnar, en við skulum halda okkur við veitingageirann þegar við ræðum þetta frumvarp. Síðustu vikur hafa auðvitað verið mjög þungar, bæði núna í janúar og desember, og fram undan eru þeir mánuðir sem eru alla jafna hvað erfiðastir í veitingarekstri og við vitum alveg að fólk sem stendur í þessum rekstri vill í lengstu lög forðast að segja upp starfsfólki. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra hvort hún telji ekki að það geti verið skynsamlegt núna þegar ákveðnar greinar verða fyrir svona miklu höggi þar sem eftirspurnin dregst svona skarpt saman, að endurvekja hlutabótaleiðina í einhverri mynd þótt það væri ekki nema bara fyrir þessar einstöku atvinnugreinar.