staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Hafandi verið ráðherra ferðamála á liðnu kjörtímabili og þekkjandi þau áhrif sem aðgerðir sem þær sem kynntar voru síðastliðinn föstudag hafa á m.a. veitingarekstur, menningarstarfsemi og annað slíkt, þá vil ég spyrja: Hversu lengi telur hæstv. ráðherrann réttlætanlegt að láta veitingamenn landsins t.d. bera kostnaðinn af því að ríkisstjórninni hafi mistekist að nýta undanfarin tvö ár til að tryggja að Landspítalinn ráði við verkefnið sem nú liggur fyrir? Er ekki tími til kominn að við hættum þessari vitleysu, hæstv. ráðherra?