152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[16:22]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég vil einmitt spyrja um sömu málsgrein. Ef arði er úthlutað og eigin hlutir keyptir á árinu eða úttekt eiganda innan ársins fer umfram reiknað endurgjald er þá 99% af reiknuðu endurgjaldi í lagi? Sleppur það? Helmingur? Ég átta mig ekki á því af hverju það er endilega ef það fer umfram. Væri ekki skilvirkara að það væri þá bara ekki? Hvernig virkar þetta? Eru aðrar tilfærslur mögulegar sem myndu einhvern veginn bregðast væntingum okkar, væntingum ríkisstjórnarinnar með þessu frumvarpi? Ég klóra mér í hausnum yfir því hvernig við erum að afgreiða þetta.

Eins og hæstv. ráðherra talaði um áðan þá vildi hún fá að leita aðeins í ráðleggingar til að geta gefið nákvæmari svör. Erum við kannski að tala við ráðherra úti í löndum í gegnum síma eða erum við í andsvörum við ráðuneyti? Mér finnst rosalega óþægilegt að glíma við mál sem þingið á að afgreiða á svona stuttum tíma. Það er talað um samráð við forsætisráðuneytið og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti líka, væntanlega varðandi útsvarið og þess háttar, ég veit ekki alveg hvað forsætisráðuneytið var að vesenast í þessu. Það væri kannski eðlilegt að þau útskýrðu það á einhvern hátt í umræðunni hérna.

En varðandi útgreiddan arð t.d., ef það fer umfram reiknað endurgjald: Af hverju er það eitthvert sérstakt viðmið frekar en 99% af því, 50% af því ? Ég skil þetta ekki og það er ekki útskýrt í frumvarpinu.