152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[16:26]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Það sem kom fram hjá hæstv. ráðherra er að það á einmitt ekki að greiða sér út arð en orðalagið þarna er samt „fer umfram reiknað endurgjald“. Þegar við horfum á fyrirtæki sem eru þegar búin að greiða sín gjöld, fá kannski frestun á næsta gjalddaga, ef við tölum um tvo gjalddaga hérna, mega þau þá í rauninni greiða sér minna í arð en fyrirtæki sem fresta báðum gjalddögunum? Af því að þau geta kannski greitt sér út arð upp á 90% af þessu reiknaða endurgjaldi. En þau fyrirtæki sem borguðu á gjalddaga núna en ekki á næsta, það er þá væntanlega minni upphæð og ef þau ætla sér að borga sér 90% af þeirri upphæð þá er það miklu lægra. Af hverju er þetta viðmiðið, fer umfram, í staðinn fyrir bara ekki? Það er þessi víxlverkun þarna sem ég átta mig ekki alveg á. Af hverju er verið að hafa eitthvert gat í þessum möguleikum frekar en ekkert?