staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):
Frú forseti. Í frumvarpinu er í raun verið að reyna eins og kostur er að grípa þá rekstraraðila sem helst þurfa á þessum stuðningi að halda til þess aftur að bæta lausafjárstöðu þeirra og koma í veg fyrir að þeir segi upp starfsfólki vegna þessa tímabundna ástands. Þar er reynt að gera það þannig að þau fyrirtæki sem eru þá ekki þeirri stöðu nýti ekki úrræðið. Þess vegna er reynt að finna einhvern skynsamlegan milliveg í því og tæknilega útfærslu þannig að við séum að beina stuðningnum þangað sem helst er þörf á honum. Ef það er eitthvað í þessari útfærslu sem hægt væri að betrumbæta í þinglegri meðferð í nefnd er það væntanlega eitthvað sem nefndin mun skoða. En þetta er sú tillaga sem fæðist bæði út úr greiningu og þeirri vinnu (Forseti hringir.) sem hefur átt sér stað fram að því að frumvarpið er skrifað hjá starfsfólki og sérfræðingum ráðuneytisins.