staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér aðgerðir til að framlengja lánalínur ríkissjóðs til fyrirtækja sem eru að lenda í enn öðrum forsendubrestinum vegna náttúruhamfara og opinberra sóttvarnaaðgerða þeim tengdum. Höfum í huga að hluti af samfélaginu hefur ekkert að ráði fundið fyrir þessari veiru. Á meðan sumir hafa fengið veiruna beint í fangið, beint í andlitið, hafa aðrir geta unnið mun betur í kringum hana. Það er í fyrsta lagi auðvitað framlínan í heilbrigðisþjónustunni og ef við horfum á efnahagslífið eru það síðan fyrirtæki sem undir engum kringumstæðum hefðu getað búið sig undir svona ástand. Þá er ég ekki að tala um stóru fyrirtækin sem eru með verðmæt bankasambönd, lánalínur sem voru endurnýjaðar auðveldlega, eða stóra fjárfesta sem geta veitt aukið eigið fé í reksturinn. Ég er að tala um lítil og meðalstór fyrirtæki, fyrirtæki rekin af fjölskyldum í landinu, fyrirtæki þar sem fólk er í flestum tilvikum í persónulegum ábyrgðum fyrir skuldum og rekstrinum almennt, fólk sem er að missa viðurværi sitt. Þetta er líka fólk sem er með annað fólk í vinnu, fólk sem hefur gert allt sem í valdi þess stendur til að halda sínu starfsfólki í vinnu en stendur nú frammi fyrir því í enn öðrum fasa sóttvarnaaðgerða að mega einfaldlega ekki lengur bjóða slíka vinnu eða þá með mjög takmörkuðum hætti, svo að við hin séum öruggari fyrir vikið og til að verja framlínuna.
Virðulegi forseti. Samhengið þessa dagana er eftirfarandi: Við stöndum nú í hertum sóttvarnaaðgerðum fyrst og fremst vegna ástandsins í heilbrigðiskerfinu, vegna stöðu spítalans. Nú eru tvö ár liðin frá því að faraldurinn hófst, tvö ár í stríðsrekstri á spítalanum, og ráðherrar eru mjög duglegir að telja til fjárhæðirnar sem renna til spítalastigsins í tengslum við Covid. Það heyrist trekk í trekk í fjárlagaumræðunni og heyrðist líka rétt í þessu í svari hæstv. forsætisráðherra. En hér er verið að varpa fram tölu um raunaukningu frá 2017–2021 án þess að taka tilliti til fólksfjölgunar, sögulegrar vanfjármögnunar eða tímabundinna fjárheimilda vegna Covid. Sóttvarnadeildin verður loksins fullfjármögnuð, loksins er búið að setja hana á dagskrá, eftir tvö ár, en hún er ekki komin í gang. Þar eru nokkur hundruð milljónir. Skimunin er fjármögnuð, hlífðargallar og aukavaktakostnaður vegna Covid-vinnu. Fólki er vissulega borgað fyrir að mæta á aukavakt. En ekki hvað? Þetta er fullkomlega sjálfsagður kostnaður. Höfum það á hreinu. Það er ekki hægt að hrósa sér fyrir að standa undir stríðskostnaði. Það væri vítavert gáleysi að gera það ekki. Staðreyndin er sú að þrátt fyrir allt það sem ríkisstjórnin er svo gjörn á að telja upp vantar 2 milljarða kr. inn í spítalaþjónustu miðað við áætlanir Landspítalans til að halda óbreyttri þjónustu, miðað við það sem fjárlaganefnd treysti sér til að samþykkja fyrir jól. Þetta eru ekki aukaverkefni, þetta er kostnaður vegna öldrunar, vegna fjölgunar. Þetta er kostnaður sem var tekinn af Landspítalanum í nýsamþykktum fjárlögum, í heimsfaraldri, eftir vanfjármögnun margra ára. Fyrir jólin var lögð fram breytingartillaga af minni hlutanum við fjárlagafrumvarp til að leiðrétta þetta svo að Landspítalinn færi ekki vanfjármagnaður með sinn grunnrekstur inn í enn eitt ár heimsfaraldurs en því var neitað. Við hljótum öll hér inni að vera hugsi yfir þessu akkúrat núna.
Hitt atriðið fyrir samhengi hlutanna sem við ræðum hér í dag í þessu frumvarpi er þetta: Hér hafa verið hertar aðgerðir frá 12. nóvember og við stöndum hér rúmlega tveimur mánuðum síðar, á settum gjalddaga, til að framlengja í snörunni. Það er það sem þetta er, að framlengja í snörunni á opinberum gjöldum fyrir fyrirtæki sem sinna nándarþjónustu. Hvað er í gangi? Erfið staða þessara fyrirtækja hefur legið fyrir frá því í byrjun desember, í rauninni frá því um miðjan nóvember. Síðan er mætt með gömul úrræði, talað um úrræði sem verða mögulega lögð fram í vikunni og er verið að skoða, sem mörg hver virka kannski ekkert endilega lengur, líkt og ekkert hafi breyst frá því í apríl 2020 þrátt fyrir að efnahagsreikningar fyrirtækjanna séu orðnir að engu, þrátt fyrir að mörg ný fyrirtæki, veitingastaðir og fleira, hafi verið stofnuð á meðan faraldurinn hefur geisað. Viðmiðunarárið 2019 fyrir tekjufallsstyrki þýðir því nákvæmlega ekki neitt. Ég ætla rétt að vona að það sem hæstv. utanríkisráðherra og staðgengill fjármálaráðherra sagði hér áðan um að það væru teymissérfræðingar í fjármálaráðuneytinu að meta þetta, að þetta sé tekið til greina. Við erum á allt öðrum stað en fyrir tveimur árum. Á að refsa þeim fyrirtækjum sem hafa reynt að halda sjó undanfarið, þeim sem standa nú eftir, þeim sem tóku sig til og stofnuðu nýtt fyrirtæki, nýtt veitingahús, nýtt ferðaþjónustufyrirtæki, á tímum heimsfaraldurs? Þau falla ekki undir neina styrki þessa dagana eða réttara sagt skaðabætur. Sér í lagi er þetta áhugavert í ljósi þess að lítið hefur heyrst um hlutabótaleiðina. Og hæstv. staðgengill fjármálaráðherra treystir sér ekki til að fullyrða um það á þessu stigi þrátt fyrir að við séum búin að vera í tvo mánuði með hertar aðgerðir. Og þó að þau viti nákvæmlega hver efnahagsreikningsstaða og rekstrarreikningsstaða þessara fyrirtækja er þá treysta þau sér ekki til að fullyrða um þetta núna.
Virðulegi forseti. Það er örvænting að grípa um sig í mörgum litlum fyrirtækjum. Fólk er að missa allt sitt. Og hér er mætt nærri tveimur mánuðum síðar, eftir harðar aðgerðir, með eitt frumvarp sem snýr að framlengingu frestunar gjalda. Mörg okkar vonuðu að þessu væri lokið; almenningur, við í stjórnarandstöðunni. En við höfum heldur ekki allar upplýsingarnar. Þær eru á ríkisstjórnarborðinu. Ríkisstjórnin hefur langmestu yfirsýnina og átti að vita að þessi staða sem nú er upp komin væri möguleiki og átti að vera tilbúin. Við erum með öflugt almannavarnateymi sem skoðar allar mögulegar sviðsmyndir í sóttvarnamálum. En hvar er sviðsmyndagreiningin fyrir efnahagsaðgerðir vegna sóttvarnaaðgerða? Rætt er um að það sé teymi núna að skoða þetta í fjármálaráðuneytinu. Af hverju er verið að bregðast við eftir á? Af hverju liggja ekki útfærðar áætlanir fyrir eftir tvö ár í þessum aðstæðum? Af hverju tekur þetta svona langan tíma? Var ríkisstjórnin einfaldlega ekki undir það búin að hér yrðu áfram sóttvarnaaðgerðir? Það er kannski óskhyggja meðal okkar hinna en það er ábyrgðarleysi meðal þeirra sem mest vita hverju sinni. Við erum nýbúin að samþykkja fjárlög hér inni í þessum sal nú rétt fyrir áramót þar sem nær öll Covid-úrræði voru felld úr gildi. Í ofanálag birtist í þeim fjárlögum, þrátt fyrir augljósar upplýsingar sem koma ítrekað fram á fundum fjárlaganefndar, 2 milljarða kr. umrætt gat á rekstri Landspítalans. Við í minni hlutanum bókuðum sérstaklega um þetta fyrir áramót af því að við áttuðum okkur á því að þetta væri gáleysi undir núverandi kringumstæðum. Nú erum við komin aftur á sama stað. Þar mátti líka finna samdrátt í fjárveitingum til menningarsjóða, viðbótarfjárveiting sem komið var á vegna Covid var látin fjara út og það þótti bara eðlilegt. Það var ekki tekið til greina þegar við lögðum það til í breytingartillögum okkar að mögulega væri þetta of snemmt. Það eru þrjár vikur síðan þetta var.
Í svona ástandi er veruleg hætta á að það molni undan samstöðu og hópum sé att saman, fólki og fyrirtækjum í örvæntingu, heilbrigðiskerfinu, skólum, veitingageiranum, ferðaþjónustugeiranum, því að úrræðin koma fram of seint. Fólk hefur áhyggjur af sjálfu sér og hvað aðrir séu að fá því að það er ekki úr nægu að moða. Kostnaðurinn endar með því að verða meiri fyrir vikið og samstaðan minni. Þetta er það síðasta sem við þurfum núna. Ég vek líka athygli á því hérna rétt í lokin á þessum orðum mínum að það lá ótrúlega mikið við hér í þinginu fyrir jól að samþykkja 7 milljarða kr. innspýtingu inn í mannvirkjageirann í formi afsláttar á sköttum því að mögulega gæti það dregið úr þenslu í þeim geira síðar meir, þrátt fyrir að þá hafi legið fyrir að þessir veitingastaðir væru hálflokaðir og mörg önnur nándarþjónustufyrirtæki. Við höfum ekki fengið nein svör um hvað veldur þessari forgangsröðun. Þetta eru gífurlegar upphæðir.
Virðulegi forseti. Það er á ábyrgð stjórnvalda að vera undir þetta ástand búin, vera á réttum stöðum, að mæta með réttu lausnirnar á réttum tíma. Það er ekki hægt að vera með afsakanir núna um að fólk viti einfaldlega ekki hvað sé í gangi eða hvað sé um að vera.