152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[16:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Já, það er eins og hv. þm. Kristrún Frostadóttir sagði, það er svolítið seint verið að koma með aðgerðir. Fyrir okkur sem horfum á þetta líta þessar aðgerðir, fyrir utan viðspyrnustyrkina sem samt eru allt of lágir, út eins og frestun. Þetta er frestun á því slæma sem koma skal. Við erum í rauninni að búa til stóran snjóbolta sem við erum búin að ýta á undan okkur í tvö ár og því miður er það þannig að ef sú óskhyggja að 1,4 milljónir ferðamanna komi hingað til lands á þessu ári verður ekki að veruleika þá mun þessi snjóbolti rúlla yfir okkur og verða snjóflóði.

Það er nauðsynlegt að taka raunverulega á vanda þessara aðila, ekki bara í þessum geira heldur í öllum þeim geirum sem lent hafa í rekstrarvandræðum út af Covid. En rétt eins og hv. þm. Kristrún Frostadóttir benti á þá verðum við að horfa á af hverju við erum að fara í allar þessar lokanir og allar þessar aðgerðir til þess að fletja út kúrfuna. Jú, það er vegna þess að við erum ekki að ráðast á raunverulega vandamálið, sem er mönnunarvandi á Landspítalanum. Af hverju er mönnunarvandi þar? Það er vegna þess að það hefur verið flótti úr heilbrigðisstéttunum, flótti yfir í aðrar stéttir og flótti úr landi. Það kom fram á síðasta ári að fjórir af hverjum fimm hjúkrunarfræðingum hætta störfum sem hjúkrunarfræðingar innan fimm ára frá útskrift. Það kom einnig fram að á síðastliðnum tíu árum hefðu um 2.000 heilbrigðisstarfsmenn flutt úr landi vegna þess að hér eru laun og starfsskilyrði alls ekki nægilega góð. Starfsskilyrðin sem fólk er að flýja er hið mikla álag sem það verður fyrir vegna þess hversu fámennt er á sjúkrahúsunum. Og af hverju er fólk ekki tilbúið að koma og vinna þarna? Jú, það er vegna þess að launin eru hreint og klárt ekki mannsæmandi fyrir þá vinnu sem verið er að inna af hendi. Síðastliðin tvö skipti sem t.d. hjúkrunarfræðingar hafa átt að fá samning hefur það lent í gerðardómi.

Nú hefur líka mikið verið talað um álagsgreiðslur. Það hefur þekkst í þeim krísum sem ég hef unnið í víða um heim að við borgum ávallt sérstakar álagsgreiðslur þegar um erfiðar aðstæður er að ræða. Það er meira að segja þannig að það er staðlað hjá Sameinuðu þjóðunum hvaða lönd eru skilgreind sem það slæm að það þurfi að borga álagsgreiðslur fyrir starfsfólk sem fer þangað. En nei, það má ekki laga laun hjúkrunarfræðinga eða annarra heilbrigðisstarfsmanna. Þess í stað erum við tilbúin að setja endalausa peninga í plástra til að laga afleiðingar þess, í stað þess að ráðast í það að stöðva blæðinguna, stöðva fólksflóttann úr heilbrigðisstéttunum. Við verðum að hætta sem stjórnmálamenn og stjórnmálakonur að horfa alltaf bara á það sem við þekkjum vel. Við þurfum að horfa á raunverulegu ástæðurnar og takast á við þær þó að þær séu erfiðar, þó að það þýði að við þurfum að tækla hluti eins og þau laun sem virkilega þarf að hækka. Og það dugar ekki að benda á eins og hæstv. ráðherrar gerðu í svörum sínum í morgun: Við höfum gert þetta, við höfum gert hitt og gert þetta. — Nei, þið hafið ekki gert það sem þarf að gera, þið hafið gert alls konar aðra hluti, t.d. ausið peningum í einkaaðila til að fá fólk frá þeim til að koma að vinna á spítalanum, en ekki að borga fólkinu betri laun sem þegar er á spítalanum. Við verðum að hætta þessari óskhyggju. Við þurfum að hætta þessum plástrastjórnmálum og fara að takast á við alvöruvandamálin, að borga heilbrigðisstéttum mannsæmandi laun. (BLG: Heyr, heyr.)