staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Frú forseti. Mig langar hér við 1. umr. um þetta mál, sem ætlunin er að klára í gegnum þinglega meðferð, þrjár umræður í dag, að koma inn á nokkur atriði sem ég held að sé nauðsynlegt að hv. nefnd sem fær málið til umfjöllunar á milli umræðna skoði sérstaklega. Í andsvari við hæstv. utanríkisráðherra kom ég inn á atriði er snýr að 3. mgr. 1. gr., þar sem segir, með leyfi forseta:
„Ef arði er úthlutað eða eigin hlutir keyptir á árinu 2022 eða úttekt eigenda innan ársins 2022 fer umfram reiknað endurgjald þeirra verður ekki fallist á frestun greiðslna í skilningi þessa ákvæðis.“
Það sem ég held að væri gott að hnykkja á í nefndaráliti, ef ekki meira, er að þarna sé ekki verið að binda sig við þau viðmið sem uppgefin eru af Skattinum, sem eru í þessum B-flokki þar sem veitingastarfsemi fellur undir. Þar er reiknaða endurgjaldið hjá einhverjum sem stýrir eigin fyrirtæki með 15 starfsmenn eða fleiri að hámarki 1.475.000 kr., með allt að 15 starfsmenn 1.104.000 kr., 2–6 starfsmenn 858.000, 1–3 starfsmenn 683.000 og ný fyrirtæki yngri en 12 mánaða með 1–2 starfsmenn 498.000. Ég get alla vega sagt að mér þykir líklegt að flestir muni heltast úr lestinni ef þau skilyrði verða viðhöfð að þeir sem stýra nýlegu fyrirtæki sem er í rekstri og kallar á alla athygli sem viðkomandi hefur að bjóða megi ekki borga sér meira en 498.000 kr. Það væri til mikilla trafala. En ég hef fengið þær upplýsingar frá hæstv. ráðherra eftir andsvar mitt hér áðan að heimilt sé að borga sér hærri upphæð að því gefnu að þar verði allt gefið upp sem launatekjur. En ég held að það væri skynsamlegt að nefndin skoðaði þetta atriði sérstaklega og hnykkti á og það hlýtur að liggja fyrir með hvaða hætti akkúrat þetta hefur verið afgreitt í fyrri sambærilegum aðgerðum.
Hér segir síðan áfram í 1. gr. í frumvarpinu, með leyfi forseta:
„Skilyrði fyrir frestun greiðslu skv. 1. mgr. eru þau að launagreiðandi sé ekki í vanskilum með opinber gjöld, skatta og skattsektir sem komnar voru á eindaga 1. ágúst 2021 …“
Í greinargerðinni er komið inn á það að „miðað skal við skuldastöðu eins og hún var í lok júlí 2021.“ Það þarf að hnykkja sérstaklega á því að fyrirtæki sem hafa mögulega verið í vandræðum á þeim tímapunkti en komið sér út úr þeim lendi ekki í vandræðum á grundvelli þess að hafa átt slæma punktstöðu í lok júlí 2021. En texti frumvarpsins, eins og mér sýnist hann liggja, miðar bara við þessa tilteknu dagsetningu. Það er atriði sem ég held að væri skynsamlegt að hv. nefnd skoðaði.
Síðan segir undir lok síðustu málsgreinar 1. gr., með leyfi forseta:
„Leiði síðari skoðun í ljós að skilyrði greiðslufrestunar hafi ekki verið til staðar skal launagreiðandi sæta álagi til viðbótar upphæð skilafjárins …“
Í þessu ljósi er auðvitað nauðsynlegt að reglurnar séu eins skýrar og nokkur kostur er og vísa ég þá í þau tvö atriði sem ég hef nefnt nú þegar. Ef gera á þeim fyrirtækjum sem verða á seinni stigum metin utan ramma sérstaka sekt þannig að þau sæti álagi þá er nauðsynlegt að reglurnar séu mjög skýrar hvað það varðar.
Síðan langar mig að vekja athygli á 2. gr. þar sem segir, og það kom fram í framsögu hæstv. ráðherra, að fyrirtækjum sé „heimilt að sækja um frestun á skilum á allt að tveimur greiðslum á staðgreiðslu tryggingagjalds sem eru á gjalddaga 1. janúar 2022 til og með 1. júní 2022.“
Þetta er sem sagt frestun á greiðslum, ekki niðurfelling í neinu samhengi. Til þess að skoða þetta í einhverju samhengi hefði verið til mikilla bóta, af því að hæstv. utanríkisráðherra nefndi áðan í framsögu sinni að fleiri mála væri að vænta inn í þingið á næstu dögum, að okkur þingmönnum væri að einhverju marki gerð grein fyrir hvers væri að vænta, fyrir utan í sjálfu sér það augljósa, að það væru einhverjar liðkandi aðgerðir til þess að plástra á sár tiltekinna hluta atvinnulífsins.
Mig langar svolítið að gagnrýna með hvaða hætti þetta ber að. Við erum komin hátt í tvö ár inn í þennan faraldur og hæstv. ráðherra var gagnrýndur í gær af lækni sem hefur gaman af því að vera í fjölmiðlum fyrir að vera að spyrja spurninga í miðjum heimsfaraldri. Ég ætla bara að vona að guð lofi að við séum ekki í miðjum faraldrinum því að þá eru tvö ár eftir. En það er auðvitað fráleit sú afstaða sem þar kom fram, að ráðherrar mættu ekki spyrja spurninga. Ég veit ekki hvert við erum komin ef það er staðan, en sá læknir verður að eiga það við sig. En þetta var nú útúrdúr.
Mig langar að gagnrýna að við séum hér komin tvö ár inn í þennan faraldur, nýbúin að taka þá ákvörðun að fresta ekki upphafi skólaárs í grunnskólum landsins og bara nokkrum mínútum seinna er tekin ákvörðun um að skella hér öllu í lás, tíu manna samkomutakmarkanir. Hafa þær orðið harðari á einhverjum tímapunkti? Ég held ekki. Ég held að þetta sé það harðasta sem við höfum horft á. Á sama tíma horfum við t.d. til þess að á Spáni eru forsætisráðherra og heilbrigðisráðherra þeirrar þjóðar, sem er þó í töluvert verri stöðu hlutfallslega en við, farnir að kalla eftir því að Evrópusambandið höndli kórónuveiruna, eftir að ómíkron-afbrigðið varð ríkjandi, sem hverja aðra flensu. Hæstv. heilbrigðisráðherra sagði í óundirbúinni fyrirspurn áðan að við værum á allt öðrum stað í þessum faraldri sem snýr að ómíkron-afbrigðinu heldur en t.d. Spánn. Það hittist nú bara þannig á að fyrsta greining ómíkron-afbrigðis hitti á sama dag á Spáni og hér á Íslandi.
Ef við ætlum ekki að leyfa okkur að draga neinn lærdóm af því sem er að gerast í löndunum í kringum okkur þá erum við á alveg sérstaklega vondum stað. Við horfum til þess t.d. að sóttvarnalæknir hefur í viðtölum í dag lýst því yfir að það sé enn í það fyrsta að við séum komast að niðurstöðu um hvort ómíkron sé veikara en önnur afbrigði. Það er auðvitað ekki boðlegur málflutningur. Við erum að taka hér ákvarðanir sem snúa að lífi og dauða fjölmargra fyrirtækja. Ég held að ríkisstjórnin hafi hlaupið á sig síðastliðinn föstudag, eða með þeim aðgerðum sem voru tilkynntar síðastliðinn föstudag, hvort þau fóru á taugum eða hvort minnisblað sóttvarnalæknis var sett fram með þeim hætti að þetta væri svolítið eins og í Icesave-málinu forðum — það eina sem gerði Icesave 2 bærilegt á að líta var samanburðurinn við Icesave 1.
Það er auðvitað þannig að ef framsetningin, sem var ný af nálinni, eins og því hefur verið lýst, var þeirrar gerðar að búið væri til skjól með brjálæðislegustu tillögu sem komið hefur fram síðan þessi faraldur brast á fyrir tveimur árum síðan, brjálæðislegustu tillögu sem komið hefur fram þegar ekkert mjög mikið er í gangi — við sjáum að fjöldi þeirra sem eru á gjörgæslu er algerlega stöðugur, þeim fer sem betur fer fækkandi sem eru í öndunarvél. Nei, þá er öllu skellt í lás. Svo erum við hér í einhverjum bráðaaðgerðum til að bregðast við því eftir á að leyfa fyrirtækjum, náðarsamlegast, að uppfylltum alveg ótrúlega mörgum skilyrðum, að fresta tveimur gjalddögum. Hvað varðar þá sem voru svo óheppnir að vera búnir að borga þetta á hinum hefðbundna eindaga, sem er 15. hvers mánaðar, er sérstaklega tilgreint hér í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Ekki er gert ráð fyrir því að þær greiðslur sem þegar hafa verið inntar af hendi á gjalddaga 1. janúar 2022 komi til endurgreiðslu.“
Það er sem sagt gjalddaginn sem fjallað er um hér í dag og er til greiðslu í dag á grundvelli þess sem hefðbundið er að sé 15. janúar. Ekki er gert ráð fyrir því að þær greiðslur sem þegar hafa verið inntar af hendi á gjalddaga komi til endurgreiðslu. Þetta er alveg ofboðsleg kerfishugsun, alveg ofboðsleg.
Hvernig eru þeir sem sömdu þetta frumvarp — því að ég treysti því að hæstv. fjármálaráðherra hafi ekki gert það í fríinu erlendis þannig að það hafa eflaust verið starfsmenn fjármálaráðuneytisins sem skrifuðu þennan texta — þess umkomnir að þekkja með hvaða hætti fjármagnsflæði þeirra fyrirtækja er sem greiddu á gjalddaga í þeirri trú að þeim væri uppálagt að gera þetta með hefðbundnum hætti og standa skil á sínu? Þetta geta verið fyrirtæki sem mest þyrftu á að halda af því að í öllu þessu regluverki er lagt svo mikið upp úr því að ekki komi til neinna vanskila eða að samkomulag sem gert hefur verið við skattyfirvöld haldi upp á tíu. Þó að tíminn sé knappur og það eigi að klára þetta í dag væri æskilegt ef hv. fjárlaganefnd tækist að koma í nefndarálit einhverjum skilningi á því hvernig þessir hlutir ganga raunverulega fyrir sig við rekstur fyrirtækja í jafn erfiðu og ófyrirsjáanlegu umhverfi og stjórnvöld bjóða þeim upp á í dag. Því að aðgerðin sem var gripið til síðastliðinn föstudag — ég er mjög hræddur um að það séu ekki nema nokkrir dagar í að stjórnvöld átti sig á því að þau eru algerlega úti að aka hvað þetta varðar og stigi til baka, bregði frá þessu. Í því ljósi munu auðvitað allar tengdar aðgerðir skoðast. En ég óska hv. nefnd góðs gengis við að reyna að koma fram sjónarmiðum í þessu nefndaráliti sem skýra þau atriði sem eru óljós því það skiptir svo sannarlega máli í þessu samhengi.