152. löggjafarþing — 20. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[16:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég tel þetta frumvarp vera kristaltært dæmi um það sjálfskaparvíti sem ríkisstjórnin hefur sett sig í að undanförnu og miklu lengur en þessi faraldur hefur verið í gangi en tvímælalaust á tímabili hans. Það lýsir sér í endalausu óvissuástandi. Í upphafi faraldurs frestaði ríkisstjórnin því að leggja fram fjármálaáætlun sína sem á einmitt að marka stefnu stjórnvalda sem býr til öryggi. Í upphafi faraldursins var talað um að bregðast við jafnóðum. Það bjuggust allir við að þetta yrði stuttur faraldur, þessi eina bylgja, en ekki að það yrðu þessi tvö ár og lengur jafnvel, eins og möguleiki er á. Gott og blessað. En við eigum að setja öryggið á oddinn hvað þetta varðar og gera ráð fyrir svartsýnni sviðsmynd en það er ekki gert. Það var ekki gert ráð fyrir því að ef verr færi þá væri til einhvers konar aðgerðaáætlun heldur er sífellt verið að bregðast við jafnóðum og of seint, eins og þetta frumvarp. Það er fyrirsjáanlegt að um leið og stjórnvöld grípa til takmarkana muni það skapa vandamál hjá þeim aðilum sem takmarkanirnar skella á. Það er fyrirsjáanlegt og óskhyggjan hefur augljóslega verið allan þennan tíma að áhrifin yrðu það lítil að ekki þyrfti að gera neitt. Það er augljóst í þessu frumvarpi að enn og aftur eru þær væntingar og sú óskhyggja ekki að rætast.

Það einkenni þessa frumvarps sem við erum að glíma við núna er síðan annað atriði sem veldur í rauninni öllum þessum vanda sem við glímum við núna. Það er búið að grafa undan þeim kerfum sem eiga að geta brugðist við svona ástandi. Að sjálfsögðu ekki í upphafi faraldursins þegar vantaði bóluefni og veiran var vissulega alvarlegri, en núna eru alveg mjög stórar spurningar um það hvort alvarleikinn sé það mikill að hann réttlæti þær væntingar ef heilbrigðiskerfið gæti glímt við afleiðingarnar. Þar komum við einmitt að spurningunni um það hvort heilbrigðiskerfið hefði getað glímt við afleiðingarnar af núverandi bylgju ef ekki hefði verið búið að grafa undan þessum kerfum í fjöldamörg ár. Þetta er stór spurning sem við verðum að spyrja okkur því það er gegnumgangandi í gegnum allan þann feril sem ég hef verið í fjárlaganefnd að það er ítrekað vanfjármagnað. Það er ítrekað bent á nákvæmlega þá galla sem valda þeirri vanfjármögnun. En nei, það er flöt aðhaldskrafa. Við skulum vera með naumhyggju hérna því það er einhvern veginn svo ábyrg fjármálastefna að vera með þá naumhyggju að passa að halda öryggiskerfum okkar bara rétt þannig að þau skrimti, meira að segja á sársaukafullan hátt, eins og við könnumst við í gamalli umræðu um að fólk liggi frammi á göngum og þess háttar á heilbrigðisstofnunum. Naumhyggjan þýðir að við getum ekki brugðist við álagi. Það eru dæmi um þetta víðs vegar um heiminn. Orkukerfið í Bandaríkjunum var t.d. hannað þannig að það gat glímt við það þegar einn og einn hluti af dreifikerfinu féll niður. Þá gátu aðrir hutar af dreifikerfinu séð um afganginn, gat tekið við álaginu. En um leið og tveir hlutar féllu niður þá hrundi allt. Það sem við erum að glíma við núna er að út af þessari naumhyggju er ekki nægt svigrúm til að glíma við álagið sem er núna og þess vegna þurfum við að líða takmarkanir sem ég tel að heilbrigðiskerfið ætti að geta glímt við en getur það ekki út af téðri naumhyggju.

Hérna erum við með ríkisstjórn sem er til í að fjármagna björgunaraðgerðir fyrirtækja frekar en forvarnir í heilbrigðismálum. Það er ekkert nýtt við þetta. Það sést á því að hjúkrunarfræðingar geta ekki fengið kjarasamning, hafa þurft að fara núna tvisvar í röð í gerðardóm. Ljósmæður áttu í erfiðleikum með sína kjarasamninga líka og það er flótti úr röðum sjúkraliða. Þetta er bara gegnumgangandi. Eina stéttin sem komst kannski vel frá kjarasamningum voru læknar enda með gríðarlega öfluga áróðursvél þar á bak við, ekkert endilega í neikvæðri merkingu þess orðs, alls ekki. Við þurfum nauðsynlega að fara í framtíðarhugsun á því hvernig við viljum haga þeim öryggisnetum sem við erum með til þess að við getum glímt við neyðarástand. Við gerum ráð fyrir því að það þurfi að grípa til neyðaraðgerða af og til. Og hvað þýðir það? Það þýðir ekki að við gerum ráð fyrir neyð, að sjálfsögðu ekki. Það þýðir að þegar neyðarástand skapast vitum við hvað við eigum að gera. Við vitum að við eigum að gera sviðsmyndir um t.d. svartsýnni niðurstöður en búist er við. Ríkisstjórnin gerði ráð fyrir ákveðinni þróun þessa faraldurs og ætlaði að bregðast við jafnóðum. Raunin varð sú að þær áætlanir stóðust ekki og það var alltaf verið að spóla í sama farinu. Það var ekki byggð nein undirstaða eða grundvöllur undir starfsemi í faraldri, eðlilegt líf í faraldri, eins eðlilegt og það getur verið, heldur er sífellt verið að fara í einhvern pendúlaleik fram og til baka með takmarkanir, slakanir, takmarkanir og slakanir. Það er nýbúið að setja á einar hörðustu takmarkanir í þessum faraldri og strax byrjað að tala um tilslakanir. Það er verið að setja á gríðarlega harðar takmarkanir hjá ákveðnum aðilum innan samfélagsins þar sem smit eru ekkert endilega vandamál á meðan það er ekkert aðhald á þeim stöðum þar sem smit virðast dreifast sem mest, í skólum og leikskólum. Það er kannski ekki alvarlegt af því að það leggst síður á börn sem betur fer þó að það séu til alvarleg tilfelli hvað þau varðar, en þá er samt allt opið og stjórnvöld útskýra ekki fyrir okkur á nægilega greinargóðan hátt af hverju þessi forgangsröðun er í gangi. Af hverju þarf að loka börum og skemmtistöðum? Er vandamálið í alvörunni þar? Kemur það í alvörunni til með að leysa þetta vandamál með dreifinguna og fjölda smita þannig að heilbrigðiskerfið í núverandi ástandi geti ráðið við það? Ég hef ekki minnstu hugmynd. Ég sé engin sérstök rök fyrir því að svo sé. Ég sé bara þá ásýnd að verið sé að grípa til einhverra aðgerða, að það séu svona ákveðin róandi áhrif: Við erum nú að gera eitthvað. En þegar maður spyr og potar: Bíðið, fyrirgefið, af hverju eru þið að gera nákvæmlega þetta? Þá hafa svörin verið nákvæmlega engin þessi tvö ár. Við erum alltaf að spyrja: Fyrirgefið, af hverju veljið þið þessar aðgerðir en ekki einhverjar aðrar? Og svörin hafa aldrei verið á reiðum höndum. Aldrei.

Þetta er kjarni þessa frumvarps sem við glímum við hérna, afleiðingin af því öllu að það er kerfisbundið grafið undan þeim öryggisstofnunum sem eiga að sinna öryggi okkar, heilbrigði okkar. Það er skortur á forsjálni, það er skortur á skipulagi sem gerir það að verkum að við þurfum að fá hérna frumvarp sem bjargar öllu einhvern veginn, eða bjargar ekki, það frestar vandamálinu fram á seinni hluta þessa árs með von um að það gangi svo vel fyrri hluta ársins að fyrirtækin geti kannski greitt þetta allt, þá væntanlega án þess að til komi fleiri vandamál. Ég veit það ekki. Kannski er þetta ekki nóg og kannski mun þessi frestur einfaldlega verða gríðarlegur hausverkur við eðlilegar kringumstæður seinni hluta árs og þá mun þurfa að leysa þetta einhvern veginn öðruvísi en með dreifingu á fjóra gjalddaga. Við höfum ekki hugmynd um hvort það dugi, hver greiningin er þar á bak við. Er verið að giska á að fjórir gjalddagar séu nóg? Er það samkvæmt fyrri reynslu af notkun á þessu úrræði? Var það nóg þá? Líklega ekki því við erum enn í faraldri og það er enn sama vesenið.

Ég veit ekki hvernig stjórnvöld starfa. Ég bara skil það ekki að eftir tvö ár af þessu skammsýnisrugli séum við enn í þessu. Við erum enn þá í: Köllum saman þingið og húrrum í gegn frumvarpi á einum degi. Það er hægt að gera það fyrir fyrirtæki sem eru með gjalddaga til að greiða skatta en það er ekki hægt að húrra saman þinginu til þess að reyna að redda mönnunarvandanum á heilbrigðisstofnunum, eins og t.d. með tillögu hérna fyrr í dag um að greiða einfaldlega bara hærri laun í smá tíma til að reyna að kalla til allt þetta fólk í heilbrigðiskerfinu sem starfar annars staðar, reyna að kalla það til baka til skamms tíma. Það eru einhverjar bakvarðarsveitir og ýmislegt svoleiðis jú, en álagið er svo rosalega mikið að við þurfum einmitt meira en að bara einn partur kerfisins falli og afgangurinn virki. Við þurfum að þótt tveir, þrír, fjórir partar geti dottið út sé kerfið samt ekki undir álagi. Það er þannig sem við þurfum að hugsa um það hvernig við glímum við neyðarástand, að dreifa álaginu nægilega mikið þannig að það brenni ekki út og skilji okkur eftir í einhverjum rústum þegar þessum faraldri loksins lýkur.