staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegur forseti. Það er afstaða okkar í þingflokki Viðreisnar að við ætlum að styðja að þetta mál nái fram að ganga hratt, vel og örugglega. En ég vil gjarnan grein fyrir nokkrum sjónarmiðum sem þarf að hafa uppi hér við þessar aðstæður. Maður fékk það á tilfinninguna þegar var verið að tilkynna um harðari sóttvarnaráðstafanir núna á dögunum að eftir helgi, þ.e. núna, yrði farið í að kynna einhvern aðeins viðameiri efnahags- og fjármálapakka til þeirra sem eiga um sárt að binda en raunin er í dag, því að það sem við erum að gera í dag í þessu máli er ekki neitt annað en að fresta ákveðnum vanda. Við erum ekki að taka á neinu vandamáli. Við erum ekki að bæta fyrirtækjum upp tekjutap, við erum að fresta greiðslu gjalda og það vita jú allir hvað það þýðir. Það þýðir að það kemur síðar að skuldadögum. Þetta er í sjálfu sér ágætisúrræði ef því fylgir eitthvað meira, sem virðist nú vera frekar langt í að verði kynnt miðað við öll tækifærin sem ríkisstjórnin hefur haft til þess. Ég segi þetta bara með vísan í það sem fram kemur í greinargerðinni sjálfri með þessu máli. Þar segir:
„Frá því um miðjan nóvember sl. hafa verið í gildi miklar takmarkanir á starfsemi veitingastaða þar sem heimilaðar eru áfengisveitingar, opnunartími styttur og hámarksfjöldi gesta í rými takmarkaður verulega.“
Þetta er með öðrum orðum búið að vera í gangi með einum eða öðrum hætti í fleiri fleiri vikur, í einhverja mánuði. Þar af leiðandi hlýtur að vera hægt að fara fram á það að aðeins meiri langtímahugsun fylgi því sem hæstv. ríkisstjórn leggur til hverju sinni. Nú efa ég það ekkert að innan ríkisstjórnarinnar sé fólk almennt velviljað því að veitingarekstur og matsölustaðir og annað slíkt gangi vel. Það er jú bara hagur samfélagsins að svo sé. Það eru fjölmargir sem eiga lifibrauð sitt undir því að þessir staðir gangi vel fyrir utan það að þetta er auðvitað leið fyrir okkur líka til að njóta samveru með vinum og kunningjum og gera okkur glaðan dag. Þetta allt saman er takmarkað í dag með margvíslegum hætti eins og við þekkjum og þess vegna er auðvitað nauðsynlegt að grípa til aðgerða. En eins og orðin bera með sér sem ég vitnaði til í greinargerðinni þá hefur verið nægt andrými til þess að búa til einhvers konar plan til lengri tíma til þess að slíkir aðilar geti starfað við ákveðinn fyrirsjáanleika, a.m.k. meiri fyrirsjáanleika en nú er og meiri fyrirsjáanleika en ríkisstjórnin hefur boðið upp á. Manni finnst eins og það sé alltaf verið að nálgast hlutina þannig að vikan núna hljóti að vera síðasta vika faraldursins, að við séum alveg að sleppa fyrir horn. En það eru ekki nema fáeinir dagar síðan sóttvarnalæknir hafði það sem eitt af úrræðunum sem ríkisstjórnin þurfti að leggja mat á á ríkisstjórnarfundi að leggja beinlínis til útgöngubann. Það segir okkur heilmikla sögu um það hvar við erum stödd í þessum faraldri og að það er ekki boðlegt að vera alltaf að horfa til einnar viku eða tveggja vikna í senn, bíða með aðgerðir í von um að betri tíð renni fljótlega upp, því að þannig hefur það ekki verið. Við vitum ekkert hvað þetta ástand mun vara lengi þótt öll leyfum við okkur að vera vongóð.
Mig langar að vitna aðeins í orð Braga Skaftasonar, sem rekur þrjá veitingastaði í Reykjavík, í fréttunum á dögunum. Hann var að tala um að frestun á tveimur gjalddögum hjálpi en sé afskaplega lítill hluti af heildinni. Það er haft eftir honum í frétt að eftir tvö ár af takmörkunum séu launin að sliga veitingahúsin og hann vísar til þess sem gert var í upphafi faraldurs. Ég vitna hér beint í orð hans, með leyfi forseta:
„Þá kom fram mjög góð leið sem ég vil bara sjá ríkið endurtaka. Það var hlutabótaleið fyrir fyrirtæki sem lenda svona hrikalega í því. Ég er með fullt af starfsfólki sem er á fullum launum hjá mér og hefur ekkert að gera.
Ég hef ekki þurft að segja upp starfsfólki enn þá. Þegar ég segi ekki þurft, ég hef bara þráast við. Ég stend með mínu fólki, ég horfi á þetta sem samvinnufólk sem er sérfræðingar í sinni grein. En ef ástandið heldur áfram að vera jafn slæmt og það er núna og ríkið ætlar ekki að koma til móts við okkur meira en boðað er, ef launaliðurinn verður ekki dekkaður að einhverju leyti, þá þurfum við aðeins að fara að skoða ástandið.“
Þetta er sú grafalvarlega staða sem blasir við hjá fyrirtækjum sem þurfa að sæta takmörkunum og þau eru ansi mörg, ekki bara í þeim geira sem við erum að ræða akkúrat núna heldur verða auðvitað fleiri fyrirtæki og heimili fyrir búsifjum vegna faraldursins.
Ég sakna þess að ríkisstjórnin skuli ekki hafa eitthvað af þessum úrræðum stöðugt í gangi á meðan það þarf að grípa til einhverra takmarkana. Setjum sem svo að þetta ástand haldi áfram einhverja mánuði í viðbót. Setjum sem svo að það komi upp eitthvert nýtt afbrigði eða að faraldurinn haldi áfram með einhverjum hætti sem ekki var fyrirséð eftir einhverja mánuði eða annað, að þá viti fólk, heimili, fyrirtæki og allir rekstraraðilar að ríkisstjórnin er a.m.k. tilbúin, vegna þess að það er auðvitað hægt að sækja í þann bjargráðapakka sem var reyndur hér á fyrri stigum faraldursins. Það er fullt af leiðum þarna úti sem Alþingi sættist á að fara og reyndust vel. Það er hægt að nota þessi úrræði áfram. Það er hægt, og ég ætla að leyfa mér að hugsa upphátt vegna þess að ég held að þeir sem starfa í veitingarekstri, svo dæmi sé tekið, eigi það alveg skilið að við veltum upp öllum möguleikum sem hægt er, að hafa eitthvert regluverk í gangi sem segir að ef faraldurinn fari á ákveðið stig og það þurfi að herða takmarkanir með tilteknum hætti þá séu, og menn viti það fyrir fram, ákveðnar aðgerðir í boði, ákveðin úrræði í boði fyrir þá sem standa í rekstri. Það kemur okkur kannski aðeins út úr þeirri stöðu sem við erum í hérna í dag, þ.e. að við erum búin að bíða frá síðasta ríkisstjórnarfundi, í nokkra daga, eftir því að ríkisstjórnin kynni einhver úrræði og hún er síðan bara tiltekin frestun á gjalddögum en ekki gengið lengra sem þó er það sem veitingastaðirnir, svo við tökum þá bara sem dæmi, hafa verið að kalla eftir mánuðum saman. Þannig er það búið að vera og þannig verður það vafalítið áfram í einhvern tíma enn.
Svo langar mig líka að gera að umtalsefni, af því að við erum að tala um þetta í víðu samhengi, að kráareigendur hafa verið að benda á að þrengri takmarkanir sem loka starfseminni að langmestu eða öllu leyti hjá þeim gera í rauninni ekkert annað en að færa til ákveðna hegðun, þ.e. þeir sem hefðu gert sér glaðan dag á krá færa sig bara yfir á annan stað sem má hafa opið vegna þess að það er aðeins annars konar rekstur þar en þó hægt að setjast niður og njóta samvista við vini, kunningja og fjölskyldu. Það eru alls konar svona þversagnir byggðar inn í þetta sem vel er hægt að halda á lofti hér og ræða samhliða þessu. Ég vil bara árétta: Við eigum ekki lengur, komin næstum því tvö ár inn í faraldurinn, að hugsa um þessa bylgju sem síðustu eða þessa viku jafnvel sem þá síðustu eða að þegar núverandi samkomutakmarkanir og þrengingar á mannréttindum renna út þá hljóti að koma til þess að við slökum á klónni. Við verðum einfaldlega a.m.k. að gera ráð fyrir því og senda út þau skilaboð til þeirra sem standa í rekstri og eru að verða fyrir búsifjum vegna þessa að það sé einhvers konar hald í aðgerðum sem bíða ef þessi vika er ekki sú síðasta, ef þessar aðgerðir eru þess eðlis að það þurfi að framlengja þær til lengri tíma. Það er síðan hægt að hvetja ríkisstjórnina til dáða og beina því til hennar að hún hugsi líka betur um menningargeirann sem er annar geiri sem hefur orðið mjög þungt úti í öllum þeim hremmingum sem riðið hafa yfir okkur í þessu.
Ég vil síðan taka mjög eindregið undir það sem fram hefur komið í þessari umræðu og við verðum auðvitað að halda á lofti og það er að við erum í þessum aðgerðum, við erum að ræða þetta mál hér í dag, einfaldlega vegna þess að mönnum hefur ekki tekist, þrátt fyrir fjölmargar áskoranir, þrátt fyrir að fjármagni hafi verið dælt inn til spítalans að einhverju leyti í sértækar aðgerðir, að koma því þannig fyrir að spítalinn anni faraldrinum betur þannig að við losnum við þessar takmarkanir. Það eru auðvitað stóra vandamálið hér og full ástæða til að rifja það upp í hvert einasta skipti sem við ræðum eitthvað tengt faraldrinum í þessum sal. Vangeta ríkisstjórnarinnar til að tryggja það að spítalinn geti sinnt hlutverki sínu jafnvel þótt aukið álag komi vegna faraldurs er ástæðan fyrir því að við erum að þrengja að réttindum fólks. Það er ástæðan fyrir því að við erum að takmarka samkomufrelsi, fundafrelsi, atvinnufrelsi og allt þetta sem við erum að ræða hér en varla fæst rætt af einhverju viti í þinginu nema þá fyrir kurteisissakir af og til þegar mál detta hingað inn.
Ég vil segja að lokum að við í Viðreisn styðjum að þetta mál nái fram að ganga. Þetta verður hins vegar að vera partur af miklu víðtækari stuðningsaðgerðum til þeirra hópa sem við erum að ræða, þeirra fyrirtækja og rekstraraðila sem hér eru undir. Það þarf miklu meira til. Við erum bara ýta vandanum fram á seinni hluta ársins. Við erum ekki að taka á honum. Við erum ekki að henda honum út af borðinu. Við erum einfaldlega bara pínulítið, eins og ég held að einn hv. þingmaður hafi rætt það hér áðan, að lengja í hengingarólinni. Það kemur að skuldadögum og þá verða fyrirtækin sem hér eru undir að vera búin að fá miklu skilvirkari og raunhæfari alvöruúrræði til að bregðast við þeim rekstrarvanda sem til er kominn vegna þess að ríkið hefur sagt: Þið þurfið að loka. Þið þurfið að verða fyrir tekjufalli. Þið þurfið að draga saman seglin á meðan við förum í þetta. Þessi fyrirtæki og þessi rekstraraðilar eiga það skilið að lengra sé gengið en gert er í þessu máli. Ég árétta að þótt við í Viðreisn styðjum að þetta mál nái fram að ganga þá köllum við að sjálfsögðu eftir því að farið verði í víðtækari stuðning við þessi fyrirtæki.