152. löggjafarþing — 21. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[22:41]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Ég vildi spyrja hv. þingmann um einn hluta af þessu máli sem snýr að því hversu ótrúlega seint það er fram komið; ég velti fyrir mér sanngirnissjónarmiðinu gagnvart því að þeir sem stóðu skil á greiðslum á réttum tíma, 1. janúar, hafi ekki kost á því að fá þessar greiðslur endurgreiddar, en að þeir sem biðu fram á síðustu stundu geti sloppið við þennan gjalddaga. Hefði málið komið fram á eðlilegum tíma, t.d. fyrir jól þegar fyrir lá að þessi gjalddagi yrði vissulega núna í janúar og að vissulega þyrfti að liðka til fyrir veitingageirann — hæstv. fjármálaráðherra staðhæfði í fréttum 10. desember að bregðast þyrfti við og liðka þyrfti til fyrir veitingageirann. Ef frumvarpið hefði komið fyrir áramót hefðu fyrirtækin staðið á jafnréttisgrundvelli að mínu mati gagnvart þessum úrræðum, en þess í stað virðist hending svolítið ráða því hvort fyrirtæki geti sloppið við að greiða opinber gjöld núna 1. janúar eða ekki.

Er hv. þingmaður sammála mér í því að réttara hefði verið að málið kæmi fram fyrir jól þannig að það væri meira jafnræði á milli þeirra fyrirtækja sem geta nýtt sér þessa ívilnun?