staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir svarið. Vissulega kemur þingið saman í dag en það er ekkert náttúrulögmál að komi saman í dag, heldur er það í raun ákvörðun meiri hlutans hvort þingheimur kemur saman fyrr eða ekki ef þörf er á. Það hefði t.d. gefið okkur betri tíma til þinglegrar meðferðar en tveggja til þriggja klukkustunda fund í efnahags- og viðskiptanefnd núna í dag þar sem við höfðum ekki tækifæri, t.d. til að tala við helstu hagsmunaaðila sem þessi löggjöf snertir. Þannig að í raun hefði verið mjög vel hægt að koma fram með þetta mál töluvert fyrr. Ég veit að hv. formaður nefndarinnar hefur lagt sig fram við að stýra fundum nefndarinnar í góðu samráði við nefndarmenn og ég held að hún hljóti að taka undir með mér að það hefði verið betra ef nefndarmenn hefðu haft meiri tíma til að ígrunda þetta mál, sér í lagi til þess að ígrunda þær breytingartillögur sem gerðar eru á því, vegna þess að þær eru frekar flóknar og umfangsmiklar og ég er ekki algerlega sannfærð um að þær nái tilgangi sínum eins og hv. formaður er meðvitaður um.
Ég velti fyrir mér: Nú er verið að bæta inn gististöðum, en á fundum nefndarinnar kom fram að gististaðir féllu ekki undir þessar sóttvarnaðgerðir sem frumvarpinu er ætlað að bregðast við, koma til móts við, bæta upp tap vegna, þ.e. að reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum eigi ekki við um þessa staði. Þar af leiðandi velti ég fyrir mér hvort hv. formaður nefndarinnar hafi fullvissað sig um, þrátt fyrir að þær breytingartillögur sem við séum að gera, hvort þessi staða falli nokkuð þarna undir, af því að þeir hafa ekki orðið fyrir þessum takmörkunum sem er forsenda þessarar aðstoðar. Ég vona að þetta hafi verið nógu skýrt hjá mér. Nógu flókið er þetta mál.