152. löggjafarþing — 21. fundur,  17. jan. 2022.

staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.

210. mál
[22:49]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Við í þingflokki Pírata munum greiða atkvæði með þessu máli, þ.e. við munum styðja þetta mál að undanskildum tveimur liðum í breytingartillögum meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar þar sem við munum sitja hjá og ég mun gera nánar grein fyrir því á eftir. Við erum ekki með á nefndaráliti meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar vegna þess hvernig vinnubrögðin voru við gerð þessa frumvarps og vegna algjörs skorts á samráði, bæði við hagsmunaaðila og aðra sem gætu haft eitthvað um þetta mál að segja. Við erum að afgreiða þetta mál á einum degi þegar það var engin nauðsyn. Við erum hins vegar komin algjörlega að frestinum eins og hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar kom inn á þar sem í dag er eindagi eins gjalddaganna sem lagt er til að hægt verði að fresta. Hins vegar sagði hæstv. fjármálaráðherra 10. desember, eins og ég kom inn á í andsvari mínu við hv. formann efnahags- og viðskiptanefndar, að það mætti engan tíma missa. Það þyrfti að bregðast við svartri stöðu í veitingahúsageiranum. Síðan eru liðnar fimm vikur og núna á einum degi eigum við að klára þetta.

Það er ekki eins og þessar fimm vikur hafi nýst nógu vel vegna þess að ráðuneytið sendi strax breytingartillögur við frumvarpið í dag til efnahags- og viðskiptanefndar til lagfæringar á eigin frumvarpi. Þar að auki lagði formaður til ýmsar breytingar, sem eru vissulega til bóta að mestu leyti að mínu mati. En með þeim stutta tíma sem gefinn er, við fáum málið fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar, lagt er til að gera þessar breytingar, höfum við engan tíma til að meta hvort þetta sé rétt aðferð við þessar breytingar. Við höfum engan tíma til að meta hvort þessar breytingartillögur séu til þess fallnar að skila tilætluðum árangri.

Að auki hefur sú töf sem hefur orðið á framsetningu þessarar lagasetningar þau áhrif að fyrirtækjum er mismunað eftir skilvísi. Þau sem greiddu opinber gjöld á réttum tíma, á gjalddaga, fá ekki ívilnun fyrir þennan mánuð. Mögulega felur það í sér að fyrirtæki sem vissulega væri að fara að greiða hærri gjöld núna 1. janúar heldur en alla jafna, vegna veltunnar í desember, fái ekki jafn mikla ívilnun með því að fresta gjalddaga síðar þegar veltan er minni. Það var ekki samhljómur í nefndinni um að heimila endurgreiðslu slíkra gjalda enda væri þá um afturvirka lagasetningu að ræða þó að hún hljóti að teljast ívilnandi, rétt eins og öll þessi atriði sem við erum að vinna með hér.

En að þeim breytingartillögum sem ég get ekki stutt með atkvæði mínu og mun því sitja hjá, þær varða að bæta inn gististöðum sem hluta af þessum fyrirtækjum sem geta fengið frestun gjalda. Það er ekki vegna þess að ég sé endilega á móti því að gististaðir geti fengið þessa sömu ívilnandi meðferð ef þeir þurfa á því að halda heldur einfaldlega vegna þess að ég er alls ekki sannfærð um að þessar breytingartillögur eins og þær eru nái þeim árangri að þessir gististaðir falli þarna undir. Það er vegna þess sem fram kom í máli ráðuneytisins á fundi efnahags- og viðskiptanefndar, að í frumvarpinu sé gengið út frá því að viðkomandi veitingahús hafi orðið fyrir takmörkunum samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. Eins og ég les hana þá falla gististaðir ekki þar undir. Þar af leiðandi fæ ég ekki séð hvernig þessar breytingartillögur geti náð tilætluðum árangri og get þar af leiðandi ekki stutt þær þar sem ég er ekki sannfærð um að um vandaða lagasetningu sé að ræða. Svo einfalt er það. Ég vil ekki gististöðum nokkuð illt né vil ég koma í veg fyrir að þeir fái þessa ívilnun og ég vona að það takist fyrir þá sem á því þurfa að halda. En það liggja engar greiningar fyrir og það liggur mjög lítil vinna að baki þessum breytingartillögum vegna þess hversu skammur tími vannst til að vinna þær þegar ákvörðun er tekin um að gera þetta á örfáum klukkustundum. Ég get ekki lagt blessun mína yfir það.

Að lokum vil ég segja, virðulegi forseti, að ég er orðin mjög þreytt á því að mál séu hér algjörlega að óþörfu lögð fram til þess að afgreiða á einum degi. Þetta er gríðarleg vanvirðing við hlutverk þingsins. Þetta segir okkur að þingið sé álitin stimpilstofnun þegar á þarf að halda, algjörlega að ófyrirsynju. Það er ekki eins og það hafi ekki verið hægt að gera þetta fyrir jól, það er bara alls ekki þannig, eða fyrir viku síðan þannig að við hefðum a.m.k. getað tekið þrjá daga í að vinna þetta frumvarp. Þetta er töluverð vanvirðing við hlutverk þingsins sem löggjafa að láta okkur að afgreiða svona mál á einum degi. Ég kalla enn og aftur eftir betri vinnubrögðum þessarar ríkisstjórnar við lagasetningu.