staðgreiðsla opinberra gjalda o.fl.
Virðulegur forseti. Fjallið tók jóðsótt og það fæddist lítil mús. Ég held að ég verði að líkja þessum aðgerðum núna við það. Þetta eru ekki róttækar aðgerðir til bjargar atvinnuvegi sem er á heljarþröm og búinn að vera það lengi. Ég ætla svo sem ekki að eyða miklum tíma hér og tefja þetta mál frekar, af því að ég styð þetta mál, þó að ég líti þannig á það að verið sé að lengja í hengingarólinni og það þurfi að gera miklu meira en þarna birtist okkur. Ég sé einnig hér að þessi flokkur, IV. flokkur, fellur undir þetta. Við vitum að það er talsverður hópur fyrirtækja sem sinnir gistiþjónustu og byggir jafnframt afkomu sína á veitingarekstri og búið er að benda á m.a. að margir staðir ætluðu sér að halda vegleg jólahlaðborð fyrir áramót en þau voru öll blásin af. Tekjufallið hefur verið mikið og gerir það að verkum að kæmi ekki til þessarar aðgerðar núna þá væru margir komnir í vanskil á þessum tímapunkti.
Mér þótti það skrýtið fyrir jól þegar við vorum að reyna að böggla fjárlagafrumvarpinu í gegn fyrir áramót að upplifa þau vinnubrögð sem mér fundust vera viðhöfð. Mér fannst mjög sérkennilegt að lesa það að þau vinnumarkaðsúrræði sem höfðu verið til staðar um talsverðan tíma yrðu blásin af. Ég gat ekki séð, alla vega ekki í mínu umhverfi, að þau væru ekki lengur nauðsynleg heldur þvert á móti. Einhverra hluta vegna voru menn komnir í eitthvert brjálæðiskast í bjartsýninni og héldu að þessu væri öllu lokið. En svo er nú aldeilis ekki. Það er mikill fjöldi fyrirtækja sem þarf á þessum úrræðum að halda og ég reikna nú með því að við þurfum í framhaldinu að dusta rykið af þeim og skoða þetta betur. Ég upplifði þetta eins og loftið hefði verið tekið úr björgunarbátnum. Nú er bara komið að því að þeir sem nutu ekki þeirra úrræða sem til staðar voru á síðasta ári eru að falla á gjalddaga núna.
Virðulegur forseti. Ég styð þetta mál og greiði því atkvæði en ég vænti þess og í raun og veru krefst þess að við tökum upp vandaðri vinnubrögð í framhaldinu.