staðan í heilbrigðiskerfinu.
Herra forseti. Velkist nokkur í vafa um að Landspítalinn sé að glíma við fjárhags- og mönnunarvanda, líkt og raunar má segja um allt heilbrigðiskerfið? Heilbrigðiskerfið er undirfjármagnað. Vandinn í heilbrigðiskerfinu stafar annars vegar af langvarandi vanfjármögnun og hins vegar af þeirri jákvæðu staðreynd að þjóðin er að eldast, þar sem æ fleiri ná háum aldri. Ég lít svo á að ég þurfi ekki að tína til heimildir og tölur til að færa rök fyrir því í þessari stuttu umræðu. Þessar staðreyndir sýna ýmsar skýrslur og greiningar. Auk þess höfum við öll orðið vitni að því í heimsfaraldrinum hvaða áhrif sveltistefna undanfarinna ára hefur haft á heilbrigðiskerfið, hún hefur leitt til þess að ekkert svigrúm er til að takast á við áföll og hún leiðir til þess að íslenska heilbrigðiskerfið fjarlægist markmiðið um að Ísland sé í fararbroddi annarra þjóða þegar litið er til heilsufars, gæða og aðgengis að heilbrigðisþjónustu. Það er sveltistefna sem núverandi ríkisstjórn ætlar að keyra áfram þó að það blasi við öllum sem vilja sjá að sú stefna reynist okkur ákaflega kostnaðarsöm nú í heimsfaraldri.
Ákalli eftir auknu fé í heilbrigðisþjónustuna svarar ríkisstjórnin með því að setja aðhaldskröfu á stofnanir. Það á hvorki að takast á við alvarlegan mönnunarvanda né að veita sérstakt fjármagn til að mæta öldrun þjóðarinnar. Stjórnvöld verða að geta hugsað út fyrir heimsfaraldurinn og neyðaraðgerðir. Þau verða að setja niður áætlanir um með hvaða hætti þau ætla að mæta þeim áskorunum sem fylgja fleira eldra fólki sem þarfnast heilbrigðisþjónustu og skorti á starfsfólki til að sinna þeim sem þarfnast umönnunar.
Nú þegar fjárlög fyrir árið 2022 liggja fyrir, þar sem stóru upphæðirnar í aukningu á milli ára til Landspítalans fara í húsbyggingar og launa- og verðlagsbætur, er ljóst að spítalinn verður að skera niður þjónustu til að halda sér innan fjárlaga. Áætlað er að niðurskurðurinn verði um 1 milljarður og 600 millj. kr. Stjórnendur Landspítalans hafa bent á að fjármagn vanti til að halda uppi sama þjónustustigi í ár og var í fyrra, til að halda uppi óbreyttum rekstri, og við það bætist álag vegna fólksfjölgunar á árinu 2022 og öldrunar þjóðarinnar. Þetta er hæstv. heilbrigðisráðherra fullljóst og hlýtur því að hafa einhverjar hugmyndir um hvað eigi undan að láta í þjónustu við sjúklinga vegna þessara ákvarðana stjórnarflokkanna. Hvar á að skera niður? Í svörum hæstv. ráðherra hér á eftir fáum við væntanlega að vita allt um það.
Herra forseti. Mönnunarvandi í heilbrigðiskerfinu hefur verið að magnast ár frá ári. Heilbrigðisstarfsfólk var undir miklu álagi fyrir faraldurinn en nú hefur keyrt um þverbak. Fólk kemst ekki í sumarfrí, það er kallað til vinnu á jólum, á stórhátíðum og úr fæðingarorlofi, svo dæmi séu tekin. Þeir sem þurfa að leita sér lækninga vilja að heilbrigðisstarfsfólk hafi fengið góðan nætursvefn, náð að hvílast, og sé árvökult við sín störf. Nú um stundir er því miður ekki hægt að ganga að því vísu. Hvaða áætlanir eru stjórnvöld með til lengri og skemmri tíma til að bæta ástandið? Eitthvað mikið þarf að koma til. Það þarf ekki aðeins að hækka laun heilbrigðisstarfsfólks heldur þarf að bæta vinnuaðstöðu, bæta líðan þess og minnka álagið, minnka líkurnar á kulnun í starfi og mistökum vegna streitu og álags. Umbætur eru aðkallandi svo að heilbrigðisstarfsfólk haldist í vinnu og hinir sem hafa yfirgefið heilbrigðisvettvanginn vilji snúa þangað aftur. Finna þarf leiðir til að fjölga nemendum í verknámi. Heilbrigðiskerfið verður ekki bætt nema ráðist sé í þessar aðgerðir og það verður að byrja strax á markvissum aðgerðum.
Herra forseti. Stjórnendur heilbrigðisstofnana úti um landið bentu á í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið að þjónustu sérgreinalækna við íbúa landsins væri verulega misskipt eftir búsetu. Heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni hafa sumar freistast til að taka fé af öðrum rekstrarliðum til að fá til sín sérfræðilækna. Þessi mismunun á aðgengi að þjónustu sérfræðilækna stuðlar að enn frekari byggðaójöfnuði. Réttast væri að Landspítalinn tryggði heimsóknir tiltekinna sérfræðilækna með reglulegu millibili út til landshlutanna. Hvað ætlar hæstv. heilbrigðisráðherra að gera til að jafna stöðu fólksins í landinu að þessu leyti?