152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

staðan í heilbrigðiskerfinu.

[14:10]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Hv. þm. Oddný Harðardóttir er málshefjandi mikilvægrar umræðu um stöðuna í heilbrigðiskerfinu og ber að þakka það. Mikið hefur reynt á kerfið í gegnum þann heimsfaraldur sem við höfum verið að feta okkur í gegnum nú í hartnær tvö ár og voru áskoranirnar nægar fyrir. Einnig dregur hv. þingmaður hér fram þær áskoranir sem við þurfum að huga að óháð faraldrinum, sem snúa að breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og fjármögnun til framtíðar því tengt. Hv. þingmaður dregur hér sérstaklega fram nokkrar áherslupunkta sem ég ætla að bregðast við, hæstv. forseti.

Fyrst fór hv. þingmaður yfir fjárhagslega getu Landspítala – háskólasjúkrahúss til að halda uppi sama þjónustustigi og frá fyrra ári og mæta þeim áskorunum sem felast í breyttri aldurssamsetningu. Þetta hangir saman. Útgjaldaheimild spítalans á þessu ári er um 90 milljarðar kr. samanborið við um 80 milljarða frá árinu á undan, þannig að hækkunin er um 10 milljarðar eða 12,5% á verðlagi hvers árs. Þetta er um 3% raunaukning. Þá má gera ráð fyrir að áskoranir vegna faraldursins verði bættar í fjáraukalögum ársins og verðlagsforsendur eru bættar samkvæmt forsendum fjárlaga sem og launabreytingar, þar á meðal kostnaður vegna betri vinnutíma í vaktavinnu. Landspítalinn hefur fengið samþykkt á fjárlögum þessa árs viðbótarfjármagn til reksturs sex hágæslurýma, þar af eru tvö þegar tilbúin, 30 endurhæfingarrýma á Landakoti, og nýrrar farsóttadeildar til að létta álagi af öðrum deildum og gera spítalanum betur kleift að mæta þessum áskorunum.

Það er rétt að ör fjölgun í hópi eldra fólks er og verður mjög mikil áskorun, bæði hér á Íslandi og auðvitað alls staðar í heiminum. Samkvæmt mannfjöldaspá Hagstofu Íslands mun öldruðum fjölga úr 12,9% af mannfjölda árið 2022 í 16,4% 2030. Um þessar mundir er sjöundi hver landsmaður 65 ára og eldri, en árið 2050 verður fjórði hver landsmaður á þeim aldri. Á móti mun fólki á vinnufærum aldri fækka. Það hefur í för með sér að ekki einungis eykst þjónustuþörfin heldur fækkar þeim sem veitt geta þjónustuna og þeim sem standa undir skatttekjum ríkisins til að greiða fyrir hana. Þetta eru miklar áskoranir, virðulegi forseti. Það kallar á breytingar á skipulagi, aðferðum, mannauði og tækni, kallar á nýsköpun, rannsóknir og fjarheilbrigðisþjónustu. Þá umræðu er mjög mikilvægt að taka þessu tengt, að ég tali ekki um lýðheilsutengdar forvarnir, sem við verðum að fara að auka til að mæta þessu.

Í annan stað kemur hv. þingmaður inn á mönnunarvandann og áætlanir stjórnvalda um að mæta þeim vanda. Mönnun í heilbrigðisþjónustunni er alþjóðleg áskorun, eins og ég sagði, og vaxandi samkeppni verður um hæft heilbrigðisstarfsfólk. Þetta er ekki spurning um hvort, heldur hvernig við mætum þessum áskorunum þegar kemur að heilbrigðisþjónustu og reyndar líka félagslegri þjónustu. Það verður gert m.a. með því að tryggja áfram öflugt menntakerfi, fjárfesta í menntun og þjálfa heilbrigðisstarfsfólk á framhalds- og háskólastigi víðs vegar um land og skapa samkeppnishæfar starfsaðstæður og efla kjör heilbrigðisstétta.

Það hefur margt mjög vel verið gert hér á liðnum árum, til að mynda á sviði sérgreinalækninga þegar kemur að menntun. Hlutverk Landspítala – háskólasjúkrahúss er m.a. að vera háskólasjúkrahús og skapa þennan vettvang fræða, vísindarannsókna og klínískrar þjálfunar. Nemendur á Landspítala eru árlega um 2.000 talsins frá öllum eða flestum menntastofnunum sem mennta heilbrigðisstarfsfólk. Meiri hluti sérnáms lækna fer fram á Landspítala sem er einnig í samstarfi við Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og Sjúkrahúsið á Akureyri. Þá heldur Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu utan um sérnám í heimilislækningum sem er kennt á um 50 viðurkenndum kennslustofnunum víða um landið. Landspítalinn hefur einnig skipulagt klínískt sérfræðinám fyrir hjúkrunarfræðinga. Landsráð, sem forveri minn skipaði hér í maí á síðastliðnu ári, er samráðsvettvangur um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Þar hafa komið mjög góðar tillögur til að kortleggja sviðið og mæta þessum áskorunum.

Í þriðja lagi kom hv. þingmaður inn á byggðajöfnun varðandi heilbrigðisþjónustu um allt land og hlutverk Landspítala – háskólasjúkrahúss í því tilliti. Ég ætla að koma að því síðar, virðulegi forseti.