staðan í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir að koma á þessari umræðu. Við erum hér að ræða vanda Landspítala – háskólasjúkrahúss og heilbrigðiskerfisins vegna Covid. Ef fólk fær Covid-19 veiruna og veikist illa þá er viðkomandi kominn í forgang í heilbrigðiskerfinu. Að þurfa nauðsynlega meðferð vegna krabbameins er ekki í forgangi í heilbrigðiskerfinu. Að brotna illa og þurfa nauðsynlegar aðgerðir vegna þess er ekki í forgangi í heilbrigðiskerfinu. Að þurfa nauðsynlega að fara í hné- eða mjaðmaaðgerð er ekki í forgangi í heilbrigðiskerfinu. Fólk í fullri vinnu sem getur ekki unnið vegna þess að það þarf nauðsynlega aðgerð er sett á biðlista svo mánuðum eða árum skiptir og það bara vegna þess að það fær ranga meðferð í kerfinu. Það fékk ekki réttláta meðferð, það slasaðist eða veiktist ekki rétt.
Það er eitthvað að kerfinu ef við erum komin á það stig að ætla að láta stóran hóp fólks, veiks fólks, grotna á biðlista. Að vera á biðlista í ár eða lengur er ótrúleg pyndingarstarfsemi. Ég hef fengið Covid-19 og ég hef verið meira en ár á biðlista. Hvort er verra? Biðlistinn er hundrað sinnum verri. Þar er verið að setja fólk í ótrúlegan vanda en á sama tíma eru Sjúkratryggingar Íslands að auka á vandann. Það er ekki samið við sjúkraþjálfara, það er ekki samið við talmeinafræðinga, það er ekki samið við sérgreinalækna og farið stríð við aðra sjúkrastofnun, SÁÁ. Ég spyr ráðherra: Hvað ætlar hann að gera í þessu máli?