staðan í heilbrigðiskerfinu.
Forseti. Mönnunarvandi heilbrigðiskerfisins má vera öllum ljós og mikilvægt að bregðast við honum, sérstaklega í ljósi aðstæðna. Mig langar hins vegar að horfa til framtíðar og minna á að það er langhlaup að bregðast við þeim mikla mönnunarvanda sem blasir við til lengri tíma litið í heilbrigðiskerfinu og þá ekki síst á landsbyggðinni. Eins og fram hefur komið er heilsugæslunni ætlað að sinna allt að 90% af daglegum verkefnum heilbrigðiskerfisins. Það skýtur því skökku við að á námstíma læknanema sé mjög takmarkaður tími tileinkaður þeim hluta sem sinnir nánast öllum fyrstu snertiflötum. Þannig eru sjúkrahús nær eina starfsumhverfið sem nemar kynnast á fyrstu fimm árunum af sex ára læknisnámi. Beint verknám læknanema í heilsugæslu er um fjórar vikur og þar af er ein vika eða fimm virkir dagar í heilsugæslu úti á landi. Það er gríðarlega mikilvægt að rétta þennan kúrs af. Fyrir því eru erlendar fyrirmyndir og það á að vera hægt að gera án þess að gefa á nokkurn hátt afslátt á faglegum grunni námsins. Áskorun þessa efnis hefur verið send læknadeild Háskóla Íslands frá framkvæmdastjórum lækninga á heilbrigðisstofnunum um land allt. Ég tek undir mat þeirra, þetta er mikið byggðamál. Ég vil líka benda á mikilvægi þess að heilbrigðisnám, hvert sem það er, sé í boði í fjarkennslu frá háskólanum til þess að halda við þekkingunni og menntuninni um allt land.