staðan í heilbrigðiskerfinu.
Virðulegi forseti. Í júní 2020 átti ég samtal við hæstv. fjármálaráðherra hér í þessum sal um yfirvofandi verkfall hjúkrunarfræðinga. Landlæknir hafði þá lýst því yfir að staðan í kjaradeilu hjúkrunarfræðinga væri ógn við glímuna við heimsfaraldur. Heilbrigðiskerfið yrði ekki rekið án hjúkrunarfræðinga. Í byrjun árs 2022 er staðan í heilbrigðiskerfinu fyrst og fremst ástæða þess að takmarkanir eru settar á fólk og hömlur á fyrirtæki, við erum í dag fyrst og fremst að verja heilbrigðiskerfið. En enn dettur ríkisstjórninni ekki í hug að bregðast við með því t.d. að beina kastljósinu að kjörum kvennastétta. Enn bólar ekkert á vinnu fjármálaráðherra, sem átti að hefjast 2018, um viðræður við aðila vinnumarkaðarins og fulltrúa sveitarfélaga til að tryggja jafnræði við launasetningu ólíkra starfsstétta hjá hinu opinbera, m.a. kjör hjúkrunarfræðinga vitaskuld. Í þingsályktun Viðreisnar, sem Alþingi samþykkti, var talað um að sérstakur kjarasamningur yrði gerður um leiðréttingu á kjörum kvennastétta, sérstakar hækkanir til viðbótar við almennar hækkanir fyrir þennan hóp með samstöðu allra helstu samtaka innan verkalýðshreyfingarinnar um sérstakt átak í þeirra þágu. Það vantar um 250 hjúkrunarfræðinga. Það er viðverandi flótti úr stéttinni. Fimm árum frá útskrift velja margir hjúkrunarfræðingar að starfa utan kerfisins, sem segir sögu um verðmætamat samfélagsins. Staða hjúkrunarfræðinga er vitaskuld ekki eina áskorunin en augljós þáttur í mönnunarvandanum. Það gerðist lítið í þessu á síðasta kjörtímabili þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir um hvernig vinnunni miðaði. Ein stærsta breytan í þessari stöðu, sem ítrekaðar launagreiningar sýna fram á; konur eru með um 15–20% lægri laun en karlar, er auðvitað kynskiptur vinnumarkaður.
Nú þegar um fátt annað er rætt í samfélaginu (Forseti hringir.) en heimsfaraldur og stöðu heilbrigðiskerfisins hrópar þögn ríkisstjórnarinnar á okkur. Hvað ætlar hún eiginlega að gera til að bæta kjör kvennastétta?