staðan í heilbrigðiskerfinu.
Herra forseti. Ég þakka málshefjanda fyrir þessa umræðu. Mig langar að halda til haga tveimur atriðum, fyrst því sem snýr að fjármögnun Landspítalans og heilbrigðiskerfisins í heild. Það er engum blöðum um það að fletta að töluverðum fjármunum hefur verið bætt við í þessum efnum undanfarin misseri og ár en ég held að færa megi rök fyrir því að það vanti töluvert upp á að a.m.k. okkur þingmönnum sé gerð glögg grein fyrir því hvernig það fé skiptist, m.a. hvað varðar nýframkvæmdir í steypu, aðgerðirnar við Hringbraut, hvað fer í rekstur og í uppbyggingu þess kerfis sem fyrir er og þar fram eftir götunum. Hv. þm. Halldóra Mogensen kom inn á það í ræðu sinni að Már Guðmundsson hefði rætt sjónarmið sín á opnum fundi velferðarnefndar í síðustu viku og þar nefndi Már sömuleiðis, ég held að það sé orðrétt en alla vega orðaði hann það þannig efnislega, að það væri alveg sama hvað við settum mikla peninga inn í kerfið núna, það myndi ekki leysa það vandamál sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Þar vísaði hann til mönnunar.
Það er auðvitað gagnrýnivert að mönnunarvandinn komi svona, ég leyfi mér að segja, aftan að okkur, aftan að stjórnvöldum. Miðað við það hvernig aldurssamsetning þjóðarinnar þróast ætti það að vera með fyrirsjáanlegustu vandamálum sem við glímum við að sjá hver þróun á þörf fyrir heilbrigðismenntað fólk er. Það er eiginlega alveg magnað að fylgjast með því núna að við séum á þessum síðustu dögum að ganga til aðgerða til að hleypa nokkrum hjúkrunarnemum aukalega áfram í námi í stað þess að halda sig við stífan klásus eins og gert hefur verið árum saman, þegar þörfin fyrir þessa menntun er jafn æpandi og raunin er núna. Ég ætla að láta þetta duga í fyrri umferð.