152. löggjafarþing — 23. fundur,  18. jan. 2022.

staðan í heilbrigðiskerfinu.

[14:32]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir frumkvæðið að umræðu um stöðuna í heilbrigðiskerfinu. Þar er sannarlega mikilvægt að horfa til framtíðar samhliða lausnum viðfangsefna samtímans. Eins og fram kom í máli hæstv. ráðherra fyrr í umræðunni er mönnun heilbrigðiskerfa áskorun á heimsvísu. Þótt störf við heilbrigðisþjónustu breytist með tækniþróun eins og annars staðar á vinnumarkaði liggur fyrir að áfram verður mikil og vaxandi þörf fyrir fólk til starfa í heilbrigðisþjónustu. Við verðum þess vegna að einblína á leiðir til að byggja upp mannauð til langrar framtíðar. Nám í mörgum heilbrigðisgreinum hefur þá sérstöðu að búa við fjöldatakmarkanir vegna skorts á verknámsplássum þar sem færri komast að en vilja. Úrlausnarefnið er því að skapa námsumhverfi sem getur tekið á móti öllu því hæfa fólki sem hefur áhuga á störfum á þessu sviði og þörf er fyrir. Það var því gott að fá þær fréttir í gær að núna yrði tekið á móti öllum þeim hjúkrunarnemum sem náðu fyrsta misseris prófum bæði við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands. Á opnum fundi velferðarnefndar í síðustu viku, sem hefur verið vitnað til í umræðunni, kom einmitt fram í máli Más Kristjánssonar að gera þyrfti gangskör að því að bæta getu og aðstöðu til að mennta fólk í tengslum við heilbrigðiskerfið. Það væri útsæðið til framtíðar.

Að lokum vil ég leggja áherslu á það að námsplássin, námsumhverfið sem verður búið til, verði fjölbreytt, veiti þjálfun við ólíkar aðstæður, í ólíkum byggðarlögum, á ólíkum sviðum. Þar verði tækni fjarnáms og fjarvinnu notuð til nýrrar nálgunar og Menntasjóði beitt þar sem við á. Ég hef miklar væntingar til þess að landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu fari í þetta verkefni og horfi út fyrir boxið.